Fótbolti

Heimir segir Skotum að nýta sér hlutverk lítilmagnans

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Heimir Hallgrímsson fagnar sigri í landsleik.
Heimir Hallgrímsson fagnar sigri í landsleik. Vísir/Getty
Frækinn sigur Íslands á Englandi í 16-liða úrslitum EM í Frakklandi í sumar vakti gríðarlega athygli á sínum tíma og gerir enn.

Englendingar hafa verið í sárum síðan - skipt tvívegis um landsliðsþjálfara á aðeins örfáum mánuðum en freista þess nú að komast aftur á rétta braut með góðum árangri í undankeppni HM 2018.

Skotar hafa ekki komist í lokakeppni stórmóts í knattspyrnu síðan 1998 og mæta Englendingum á Wembley annað kvöld í undankeppni HM.

Skoskir fjölmiðlar rifja af því tilefni upp sigur Íslands á Englandi í sumar og birti skoska dagblaðið Daily Record viðtal við Heimi Hallgrímsson, þjálfara íslenska liðsins, í gær.

Sjá einnig: Lagerbäck: Enginn Englendingur tók af skarið gegn Íslandi

„Það voru engin leyndarmál þennan dag nema leikgreining okkar og fá leikmenn til að trúa á verkefnið,“ sagði Heimir.



Fögnuður Íslands var mikill en Englendingar grétu.vísir/getty
Vorum pressulausir og það var lykilatriði

„Sálfræðin spilaði mjög stórt hlutverk í sigri okkar. Við höfðum þegar unnið hug og hjörtu stuðningsmanna okkar og knattspyrnuáhugamanna víða um heim,“ sagði hann enn fremur.

„Við gátum leyft okkur að fara inn í leikinn pressulausir. Það er lykilatriði þegar maður er lítilmagni og auðveldar manni að ná því besta fram.“

„Leikmenn voru afslappaðir og þegar leikurinn hófst fundum við að þetta yrði okkar dagur - jafnvel þó að þeir hafi skorað snemma í leiknum. Okkur tókst að jafna mínútu síðar og allt sem við höfðum planlagt gekk upp.“

Heimir segir að með réttum undirbúningi séu lítilmagnanum allir vegir færir. Þeir hafi vitað allt um enska liðið en Englendingar lítð um það íslenska.

Hann bendir einnig á að Lars Lagerbäck hafi aldrei tapað fyrir Englandi á hans landsliðsferli og að það sé líklega engin tilviljun.

„Hann notaði örugglega alltaf sama uppleggið gegn Englandi. Öflugan og þéttan varnarleik. Þegar England spilar við Ísland, Svíþjóð og líklega Skotland þá vita Englendingar að þeir eru með betri leikmenn í sínum röðum. Þolinmæði og nánast tortryggin nálgun á leikinn er það sem færði okkur velgengni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×