Fótbolti

Heimir og Lars búnir að velja byrjunarliðið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Okkar menn á æfingu á hinum glæsilega leikvangi Amsterdam Arena í dag.
Okkar menn á æfingu á hinum glæsilega leikvangi Amsterdam Arena í dag. Vísir/Valli
Lars Lagerbäck upplýsti á blaðamannafundi á Amsterdam Arena í morgun að í huga þeirra Heimis Hallgrímssonar væri ljóst hvaða ellefu leikmenn myndu byrja leikinn gegn Hollandi á morgun. Hann á von á því að tilkynna leikmönnum liðið í kvöld eða á morgun.

Sá fyrirvari væri auðvitað að allir leikmennirnir kæmust heilir í gegnum æfinguna í hádeginu í dag á keppnisvellinum, Amsterdam Arena.

Reikna hefði mátt með því að teflt yrði fram sama liði og lagði Tékka að velli á Laugardalsvelli í júní. Í ljósi meiðsla Emils Hallfreðssonar verður að minnsta kosti ein breyting gerð á byrjunarliðinu frá því í 2-1 sigrinum á Tékkum. 

Jón Daði fór mikinn með landsliðinu í 2-0 sigrinum gegn Hollandi fyrir tæpu ári.vísir/andri marinó
Flestir íslensku fjölmiðlamannanna reikna með því að Jóhann Berg Guðmundsson, sem spilaði sem framherji gegn Tékkum, fari á kantinn og eina spurningin sé hver verði með Kolbeini Sigþórssyni í fremstu víglínu. Þar koma Eiður Smári Guðjohnsen, Alfreð Finnbogason og Jón Daði Böðvarsson til greina.

Jón Daði fór á kostum í fyrri leiknum á Laugardalsvelli, hann hleypur mikið sem gæti komið okkar mönnum vel. Eiður Smári er líklega ekki 90 mínútna maður og spurning hvort þjálfararnir vilji geta gripið til hans í síðari hálfleik í erfiðri stöðu. Þá hefur Alfreð Finnbogason glímt við meiðsli í nára en hefur þó æft af krafti hér í Amsterdam.

Annar möguleiki væri sá að Rúrik Gíslason kæmi á kantinn fyrir Emil og Jóhann Berg yrði þá frammi með Kolbeini.

 

Líklegt byrjunarlið á morgun:

Markvörður: Hannes Þór Halldórsson

Hægri bakvörður: Birkir Már Sævarsson

Miðvörður: Kári Árnason

Miðvörður: Ragnar Sigurðsson

Vinstri bakvörður: Ari Freyr Skúlason

Hægri kantur: Jóhann Berg Guðmundsson

Miðjumaður: Aron Einar Gunnarsson

Miðjumaður: Gylfi Þór Sigurðsson

Vinstri kantur: Birkir Bjarnason

Framherji: Jón Daði Böðvarsson

Framherji: Kolbeinn Sigþórsson


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×