Íslenski boltinn

Heimir Guðjónsson: Kemur örugglega gámur fyrir 31. júlí

ingvar haraldsson skrifar
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, á von á því að hans liði bæti við sig leikmönnum áður en félagaskiptaglugginn lokar um næstu mánaðamót. „Það kemur örugglega gámur fyrir 31. júlí.“ Lið hans fór með 2-0 sigur af hólmi gegn Þrótti í Kaplakrika í kvöld.

Hann vill lítið segja um hvaða stöður á vellinum hann vilji styrkja. „Það er fullt af stöðum en ekkert sem ég get gefið upp hér og nú.”

Heimir telur sitt lið þó ekki dapurt þó til þurfi heilan gám af nýjum leikmönnum. „Maður aldrei hvað það eru margir leikmenn í gámnum,“ segir þjálfarinn léttur.

Þá var þjálfarinn ánægður með spilamennsku sinna manna gegn Þrótti. „Við héldum boltanum vel innan liðsins og sköpuðum okkur góð marktækifæri og skoruðum tvö mörk. Þau hefðu mátt vera fleiri og sanngjarn sigur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×