Andres Iniesta Fagnar hér markinu sem sló Chelsea út í undanúrslitum Meistaradeildarinnar vorið 2009.ordicphotos/Getty
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Chelsea tekur á móti Barcelona á Stamford Bridge í dag í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu og Fréttablaðið fékk Heimi Guðjónsson, þjálfara FH og sérfræðing Stöðvar 2 Sport, til að spá í leikinn.
„Bæði lið hafa verið að spila vel upp á síðkastið. Chelsea hefur bætt sig mikið undir stjórn Roberto Di Matteo og vann Tottenham 5-1 um helgina. Það var góður sigur á góðu liði Tottenham. Þó að eitt markið hafi ekki verið löglegt þá skoruðu þeir fjögur lögleg mörk og unnu leikinn sanngjarnt," segir Heimir.
„Lykillinn að sigri Chelsea er að þeir verða að vinna heimaleikinn. Taktíkin hjá Di Matteo er þannig að þeir hafa legið til baka og beitt skyndisóknum. Leikurinn hefur verið einfaldaður mikið eftir að hann tók við liðinu. Að mínu mati verða þeir að vera aggressívari en þeir hafa verið til þessa," segir Heimir sem býst við að Barcelona-liðið fari varlega inn í leikinn.
„Í ljósi þess að það er El Clasico á laugardaginn þá mun Barcelona sætta sig við jafntefli og að klára þetta síðan á Nou Camp. Það hefur verið þvílíkur stígandi í liði Barcelona og þeir hafa verið að spila frábærlega. Eins og Barcelona er að spila þá búast allir við að þeir klári þetta en Chelsea-liðið er með sterkt lið og með gríðarlega reynslumikla leikmenn. Chelsea verður að vinna þennan leik á Stamford Bridge ef þeir ætla að eiga einhverja möguleika á því að komast áfram. Jafntefli eða tap þýðir bara að þetta er búið og þá verður seinni leikurinn bara reitabolti hjá Barcelona," sagði Heimir að lokum.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Stuðningsmenn Bayern München voru fljótir að kaupa alla þá 45 þúsund miða sem voru í boði þegar félagð ákvað að bjóða sínu stuðningsfólki tækifæri til að fylgjast með úrslitaleik Meistaradeildarinnar ...
Meira
Borussia Dortmund tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrr í þessari viku og það er gríðarlega mikill áhugi hjá stuðningsmönnum félagsins á miðum á úrslitaleikinn á móti Bayern München...
Meira
Bayern München sá til þess að Þjóðverjar eiga tvö lið í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fyrsta skipti með 3-0 sigri á Barcelona í kvöld. Bæjarar unnu einvígið 7-0 samanlagt.
Meira
26 ár eru síðan Barcelona tapaði bæði heima- og útileik sínum í útsláttarkeppni í Evrópukeppni í knattspyrnu. Andstæðingurinn var úr ólíklegustu átt, Skotlandi.
Meira
Bayern München vann 3-0 sigur á Barcelona í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Bæjarar unnu spænska risann 7-0 samanlagt í tveimur leikjum.
Meira
Bayern München er komið með annan fótinn í úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 4-0 sigur á Barcelona í fyrri leik liðanna. Bayern þarf samt að komast í gegnum erfiðar 90 mínútur á Camp Nou í kvöld til...
Meira
Dramatíkin var allsráðandi þegar Real Madrid var hársbreidd frá því að snúa við vonlausri stöðu í undanúrslitaeinvíginu gegn Borussia Dortmund í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Meira
Jürgen Klopp, þjálfari Dortmund, lék á als oddi á blaðamannafundinum eftir að lið hans tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í Madríd í kvöld.
Meira
Cristiano Ronaldo náði sér engan veginn á strik í 2-0 sigri Real Madrid gegn Dortmund í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Sigurinn dugði ekki þar sem Dortmund vann fyrri leikinn 4-1.
Meira
Borussia Dortmund er komið í úrslit Meistaradeildar Evrópu í fyrsta skipti í 16 ár þrátt fyrir 2-0 tap gegn Real Madrid í síðari leik liðanna á Spáni í kvöld.
Meira
Leikmenn Real Madrid hafa ekki gefið upp alla von um að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þeir mæta Dortmund í kvöld í seinni leik liðanna en Dortmund leiðir einvígið, 4-1.
Meira
Borussia Dortmund mætir á Santiago Bernabeu í kvöld með 4-1 forskot á Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Gott forskot en þjálfari liðsins, Jürgen Klopp, veit að hans menn verða að gæt...
Meira
Fyrri farmiðinn í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu verður gefinn út í kvöld en þá tekur Real Madrid á móti Dortmund. Það er verk að vinna hjá spænska stórliðinu eftir að hafa steinlegið, 4-1, í fyrr...
Meira
Real Madrid þarf að blása til sóknar þegar liðið tekur á móti Borussia Dortmund í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Meira
Leikmanna Real Madrid bíður risavaxið verkefni á morgun er liðið fær Dortmund í heimsókn í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Meira
Pólverjinn Robert Lewandowski skrifaði sig í sögubækurnar í kvöld er hann varð fyrsti maður sögunnar sem skorar fjögur mörk gegn Real Madrid í Evrópuleik.
Meira
Pólverjinn Robert Lewandowski var maður kvöldsins er hann skoraði fjögur mörk fyrir Dortmund í 4-1 sigri á Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Meira
Tilkynnt var um sölu á stærstu stjörnu Dortmund, Mario Götze, til Bayern München degi fyrir stórleik liðsins gegn Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Ekki besti undirbúningurinn fyrir st...
Meira