Fótbolti

Heimir: Veltum því ekki fyrir okkur hvað skrifað er í fjölmiðlum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mikið hefur verið gert úr þeirri staðreynd að Heimir Hallgrímsson starfar einnig sem tannlæknir. Hann er minntur á það á hverjum degi og líka á blaðamannafundi íslenska liðsins í dag.

Hann viðurkennir að hann sé orðinn þreyttur á spurningunni eins og sjá má í fréttinni hér fyrir ofan. En hann segir einnig að hann sé ekki mikið að velta því fyrir sér hvað fjölmiðlar skrifa um hann eða íslenska landsliðið.

„Það er mikið að gera hjá okkur og mikilvægt fyrir okkur alla, bæði starfsmenn og leikmenn, að velta því ekki fyrir okkur hvað allir eru að segja. Það myndi æra óstöðugan að lesa allt það sem er verið að skrifa.“

„Kannski þegar ég verð eldri þá mun ég skoða hvað verður skrifar. Núið er það sem skiptir máli. Það ræður því hvert þú ferð í framtíðinni. Við þurfum að vinna vel í núinu til að við náum einhverju gegn liði eins og Frakklandi. Það er okkar hlutverk núna.“

Fyrir leikinn gegn Englandi sagði Heimir að það myndi breyta lífi leikmanna að vinna þann leik sem og allra í kringum liðið. Hann stendur við þau orð.

„Eins og ég hef alltaf sagt þá gengishækkar keppnin alla íslensku leikmennina. Ekki bara landsliðsmenninna heldur alla,“ sagði hann.

„Þetta á að vera hagur fyrir félögin heima, fyrir þjálfara og alla leikmenn. Það er eitt atriði og svo er annað að þessir leikmenn sem unnu England verða alltaf hetjur í huga fólks það sem eftir er. Þegar þeir koma heim, þá munu þeir ekki þurfa að kaupa bjór á barnum.“

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Heimir: Við viljum enda eins og Leicester

Heimir Hallgrímsson segir að hann vilji að EM-ævintýri íslenska landsliðsins fái sama farsæla endi og saga Leicester í ensku úrvalsdeildinni í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×