Fótbolti

Heimir: Þurfum að taka frumkvæðið í leiknum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Heimir vill sjá sína menn leysa pressu Dundalk betur.
Heimir vill sjá sína menn leysa pressu Dundalk betur. vísir/pjetur
FH mætir írska liðinu Dundalk í seinni leik liðanna í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í Kaplakrika í kvöld.

Staðan eftir fyrri leikinn ytra er 1-1 en Steven Lennon skoraði útivallarmarkið sem gæti reynst FH svo dýrmætt.

Sjá einnig: FH ætlar að styrkja sig í glugganum

„Við þurfum að spila vel og vera agaðir í varnarleik okkar. Við erum með frumkvæðið í einvíginu eftir útivallarmarkið hjá Lennon og við þurfum að taka frumkvæðið í leiknum í kvöld,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, í samtali við Vísi í gær.

„Við réðum ekki alveg nógu vel við pressuna sem þeir settu á okkur fyrri leiknum á köflum og þurfum að leysa hana betur og halda boltanum betur innan liðsins.“

FH-ingar eru þrautreyndir í Evrópukeppnum en þeir hafa verið samfleytt í Evrópukeppni frá árinu 2004. En hvaða hafa þeir lært af þátttökunni undanfarin ár?

„Við höfum lært margt og sýnt að þegar það er vandað til verksins og undirbúningurinn góður, þá er hægt að ná góðum árangri. Og við þurfum að gera það á morgun [í dag] því við viljum að sjálfsögðu fara áfram,“ sagði Heimir.

Sjá einnig: Tugir milljóna undir hjá FH gegn Dundalk í Krikanum í kvöld

Komist FH áfram spilar liðið a.m.k. fjóra Evrópuleiki til viðbótar. Í næstu umferð Meistaradeildarinnar bíða gamlir kunningjar, BATE Borisov frá Hvíta-Rússlandi, sem FH hefur tvisvar sinnum mætt áður.

„Ég hef þrisvar sinnum farið þarna. Við fórum þangað fyrst 2007 og svo 2010 og svo fór ég einu sinni og njósnaði um þá,“ sagði Heimir um Íslandsvinina í BATE.

„Þá voru þeir með frábært lið sem var reglulega í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. En þeir eru, án þess að ég sé búinn að kynna mér það neitt sérstaklega, ekki eins sterkir í dag. Ef við klárum Dundalk held ég að við eigum góða möguleika á móti BATE. Ef þeir sem stjórna klúbbnum setja saman þokkalegt ferðalag er ég bjartsýnn,“ bætti þjálfarinn við.

Leikur FH og Dundalk hefst klukkan 19:15 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD. Þá verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×