Fótbolti

Heimir: Þetta er skák þannig kannski gerum við eitthvað allt annað

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Heimir Hallgrímsson sat fyrir svörum á blaðamannafundi íslenska liðsins í Annecy í dag ásamt varnarmönnunum Ragnari Sigurðssyni og Ara Frey Skúlasyni.

Strákarnir okkar eiga fyrir höndum stórleik gegn Austurríki á Stade de France á laugardaginn. Nái liðið ekki í úrslit þar er frumraun Íslands á EM lokið. Íslenska liðið hefur fengið á sig tvö ódýr mörk á mótinu en þjálfarinn hefur engar áhyggjur af varnarleiknum.

„Þetta var one off í síðasta leik. Þegar þú ert í vörn 70 prósent af leiknum þá hlýtur einhverntíma að gera að því að menn taki eitt lítið feilspor. En við höfum engar áhyggjur af varnarleiknum. Alls ekki,“ sagði Heimir.

Heimir vill að íslenska liðið spili boltanum betur til að vera ekki alltaf í vörn. Aftur á móti gæti það hentar okkar mönnum vel að verjast gegn Austurríki sem þarf nauðsynlega á sigri að halda.

„Varnarleikurinn var nánast 100 prósent. Hann var 99 prósent. Við þurfum auðvitað að bæta það þegar við erum með boltann og þegar við getum bætt það verðum við ekki 70 prósent í vörn. Það liggur í hlutarins eðli. Okkur líður ekkert illa að verjast,“ sagði Heimir.

„Það góða við leikinn okkar gegn Ungverjalandi er að hann kom vel út fyrir okkur og við fengum góð færi. Vitandi það að Austurríki þarf að vinna leikinn getur það verið ákveðið vopn, að spila eins og við gerðum gegn Ungverjum. Þetta er skák og svo getur vel verið að við gerum eitthvað allt annað.“

Heimir vildi lítið segja um austurríska liðið. Hann sparaði leikgreininguna fyrir strákana okkar sem fá skýrslu um styrkleika og veikleika Austurríkismanna á hótelinu í kvöld.

„Ég vil nú helst ekkert vera að tala um styrkleika og veikleika Austurríkis hér. Þetta er mjög traust lið sem er með góðan heildarsvip á liðinu bæði í vörn og sókn. Fyrir þessa keppni var það búið að skora í 22 leikjum í röð en svo spilar það tvo leiki án þess að skora og það er svolítið áfall fyrir þá. Þeir hafa verið að hrista upp í liðinu þannig það er einhver óvissa í þeim sem ég vona að haldi áfram,“ sagði Heimir Hallgrímsson.

Alla fréttina má sjá í spilaranum hér að ofan.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Heimir: Vitum að við eigum helling inni

"Menn taka eitt lítið feilspor. Það eru engar áhyggjur í sambandi við varnarleikinn okkar, alls ekki,“ segir Heimir Hallgrímsson.

Eiður Smári: Vil ekki að þetta hætti

"Þetta er eins og að fara í Disneyland í fyrsta skipti,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen um upplifun sína af EM í Frakklandi til þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×