Íslenski boltinn

Heimir: Það verður að fagna Íslandsmeistaratitlum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH.
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH. vísir/ernir
„Ég hef ekki unnið þetta svona áður. Ég er vanur því að verða Íslandsmeistari á vellinum þannig að þetta er sérstakt,“ segir Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, en hann var bara heima hjá sér þegar FH varð Íslandsmeistari í kvöld.

Jafntefli Blika og ÍBV gerði það að verkum að ekkert lið getur lengur náð FH þegar tvær umferðir eru eftir af Pepsi-deildinni.

Það eru nákvæmlega tólf ár síðan í dag síðan FH varð Íslandsmeistari í fyrsta skipti og því vel við hæfi að félagið verði aftur meistari í dag. Þetta er annað árið í röð sem FH verður meistari og í áttunda sinn á síðustu 13 tímabilum.

„Þetta er ekki alveg eins skemmtilegt svona. Það er meira gaman að vera í stemningunni eins og í fyrra er við fögnuðum fyrir framan okkar frábæru stuðningsmenn.“

Leikmenn FH söfnuðust ekki saman í kvöld til þess að horfa á leik Blika og ÍBV. Minnugir þess að Keflavík gerði það árið 2008 og varð síðan ekki meistari.

„Við vorum ekki að spá í að gera það og vorum ekki búnir að gleyma 2008. Við tókum þetta hver í sínu horni,“ segir Heimir en leikmenn ætla að hittast í kvöld.

„Við munum hittast upp í Krika í kvöld og fagna þessu. Það verður að fagna Íslandsmeistaratitlum. Svo höldum við áfram og klárum mótið með sóma.“

Líkt og venjulega er Heimir orðaður við sitt uppeldisfélag, KR, þegar líður að lokum mótsins. Hvernig er staðan núna. Verður hann áfram þjálfari FH?

„Það á eftir að koma í ljós. Við klárum mótið og svo setjumst við niður eftir það og sjáum til með framhaldið.“


Tengdar fréttir

FH varð meistari í sófanum heima

FH varð í kvöld Íslandsmeistari í karlaflokki án þess að spila. Breiðablik gerði þá 1-1 jafntefli gegn ÍBV og það þýðir að ekkert lið getur náð FH.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×