Fótbolti

Heimir: Stundum skammast ég mín að heyra hvað ég öskraði inn á völlinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Það verða engir áhorfendur á Maksimir-leikvanginum í Zagreb þar sem strákanir okkar í íslenska fótboltalandsliðinu mæta Króatíu í fjórða leik liðanna í undankeppni HM 2018.

Króatía þarf að spila leikinn fyrir luktum dyrum vegna óláta áhorfenda en þeir spiluðu einnig heimaleikinn gegn Tyrklandi í fyrstu umferðinni fyrir tómum velli.

Ísland tapaði, 2-0, fyrir Króatíu í seinni leik liðanna í umspili um sæti á HM 2014 í Brasilíu og missti þar af tækifæri að komast á fyrsta stórmótið. Það tókst svo þegar Ísland komst á EM 2016.

Sjá einnig:Sjáðu Heimi kynna hópinn fyrir leikina á móti Króatíu og Möltu

„Við eigum slæmar minningar frá Maksimir-vellinum alveg klárlega. Króatískir stuðningsmenn eru mjög háværir. Að því leytinu til er gott að vera lausir við þá,“ sagði Heimir Hallgrímsson á blaðamannafundinum í dag aðspurður hvort þetta myndi hafa einhver áhrif.

Þetta verður í annað sinn í riðlinum sem Ísland spilar fyrir tómum velli en strákarnir okkar gerðu markalaust jafntefli við Úkraínu í Kænugarði þar sem engir áhorfendur fengu að mæta.

„Eins og í Úkraínu er þetta skrítið fyrir báðar þjóðir. Ætli leikmenn Króatíu séu ekki vanari en við að spila fyrir fleiri áhorfendur. Ég held að það sé skrítið fyrir alla atvinnumenn að spila fyrir tómum velli,“ sagði Heimir.

Sjá einnig:Heimir: Þetta er okkar stóra tækifæri

„Tilfinningin var eins og í einhverjum æfingaleik á Íslandi. Það góða við það er að þá getur Helgi látið ljós sitt skína og þá heyrist hvað hann segir,“ sagði þjálfarinn og hló en nánast heyrðist hvert einasta orð sem þjálfararnir kölluðu inn á völlinn í Kænugarði.

„Fyrir okkur er eina breytingin að það heyrist hvað við erum að segja. Stundum skammast maður sín þegar maður horfir á þennan Úkraínuleik aftur hvað maður var að öskra þarna inn á. Maður verður að vanda orðavalið,“ sagði Heimir.

„Þetta kemur jafnt út fyrir bæði lið en auðvitað væri betra fyrir Króatana að vear með sína stuðningsmenn. Vonandi getum við nýtt okkur þetta,“ sagði Heimir Hallgrímsson.


Tengdar fréttir

Heimir: Þetta er okkar stóra tækifæri

Heimir Hallgrímsson segir að nú sé tækifæri fyrir íslensku landsliðsmennina að taka völdin í riðli okkar í undankeppni HM 2018.

„Sumir spila betur ef þeir hugsa þetta sem hefndarför“

Króatía kom í veg fyrir að íslenska landsliðið kæmist á HM í Brasilíu 2014 og íslensku strákarnir fá nú tækifæri til að hefna fyrir tapið í umspilinu þegar þjóðirnar mætast aftur eftir rúma viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×