Fótbolti

Heimir: Skrái mig í Tólfuna og geri allt sem KSÍ biður mig um að gera

Tómas Þór Þórðarson skrifar
„Það er ekki mitt hlutverk að ráða næsta þjálfara en ég mun aðstoða KSÍ við allt sem þarf að gera,“ segir Heimir Hallgrímsson sem í dag hætti sem landsliðsþjálfari karla í fótbolta.

Það var klukkan tíu í morgun sem að KSÍ sendi út tilkynningu þess efnis að Heimir Hallgrímsson hefði ákveðið að semja ekki aftur og væri því formlega hættur sem þjálfari íslenska landsliðsins sem hann hefur stýrt síðan 2011, fyrst samhliða Lars Lagerbäck og síðar sem aðalþjálfari.

„Það eru nokkrir dagar síðan að ég tjáði Guðna að þetta væri minn hugur. Við ákváðum svo bara að klára málið þegar að hann kæmi eftir úrslitaleikinn. Það eru einhverjir dagar síðan,“ sagði Heimir í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Heimir hélt sjálfur blaðamannafund í morgun þar sem að honum fannst hann verða að kveðja á góðum nótum en það sem stendur upp úr hjá honum er í hversu góðri stöðu liðið er í nú þegar kaflaskil eiga sér stað. Sjálfur veit hann ekki hvað morgundagurinn ber í skauti sér.

Heimir hefur verið í þjálfarateyminu og þjálfað liðið síðan árið 2011.vísir/vilhelm
„Ég hugsa að ég skrái mig nú fyrst í tólfuna og mæti á leiki. Þetta er eitthvað sem að ég vissi ða myndi gerast. Það sem ég er svo sáttur við í dag er að geta skilað þessu af mér í þessari stöðu sem það er. Ekki bara liðið heldur er öll umgjörð á svo góðum stað. Það eru forréttindi."

Enginn þekkir íslenska liðið; leikmenn, starfslið og umgjörðina betur en Eyjamaðurinn og því væri eðlilegt að KSÍ myndi að minnsta kosti leita ráða hjá honum í ráðningarferli eftirmannsins.

„Ég mun gera allt sem ég er beðinn um að gera. Ef ég get hjálpað þá geri ég það, en það er ekki mitt hlutverk að ráða næsta þjálfara. Sem betur fer. Ef það er leitað til mín mun ég að sjálfsögðu aðstoða sambandið með öllu sem ég get,“ sagði hann.

Heimir segir að einhver lið hafi spurst fyrir um hann á síðustu dögum en ekkert sem er nógu merkilegt að ræða. En, þegar að hann lítur til baka á árin sjö, hver er stærsta stundin á landsliðsþjálfaraferlinum?

„Að hafa náð að vinna þennan riðil hérna heima á móti Kósóvó var persónulega fyrir mig sem þjálfari alveg risastór stund. Ætli það standi ekki upp úr að hafa náð að afreka það að hafa verið fyrsti íslenski þjálfarinn til að koma liðinu á HM. Það hlýtur að vera stærsta stundin á mínum ferli,“ sagði Heimir Hallgrímsson.

Allt viðtalið má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir

Hver verður eftirmaður Heimis?

Gera má ráð fyrir því að margir muni verða áhugasamir um starf landsliðsþjálfara íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu þegar það verður auglýst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×