Fótbolti

Heimir: Jafntefli yrði vonbrigði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron og Heimir á fundinum í dag.
Aron og Heimir á fundinum í dag. vísir/e.stefán
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari í fótbolta, og Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði landsliðsins, sátu fyrir svörum í Shkoder í Albaníu í morgun þar sem strákarnir okkar mæta Kósovó í undankeppni HM 2018 annað kvöld.

Kósovó er að spila sína fyrstu undankeppni HM eftir að fá grænt ljós frá UEFA og FIFA til að keppa sem sjálfstæð þjóð en liðið er í mikilli mótun.

„Ég hef séð leikina, alltaf að bæta sig sem liðsheild. Í síðasta leik, gegn Tyrklandi, hefðu átt að vera 1-0 yfir. Stærsta tapið var gegn Króatíu, 6-0, en sköpuðu samt fullt af færum. Ég vil hrósa þjálfaranum, ekki eins og félagslið þar sem leikmenn eru saman á hverjum degi yfir heilt tímabil. Hann hefur bara 3-4 daga en honum hefur tekist vel að byggja upp lið á skömmum tíma. Ég verð að hrósa þjálfaranum fyrir það,“ sagði Heimir Hallgrímsson á blaðamannafundinum í dag.

Aðspurður hvort jafntefli væru úrslit sem myndu koma honum á óvart svaraði Eyjamaðurinn:

„Nei. Jafntefli yrði því vonbrigði. Við vitum að þetta er 50/50 leikur. Markmiðið okkar er í þessum leik, eins og í öllum leikjum, að sækja þrjú stig. En við vitum að það verður mjög erfitt. En Kósóvó er alltaf að bæta sig og því er það eðlilegt að þjálfarinn þeirra sé bjartsýnn fyrir þennan leik.“

Blaðamannafundurinn var í beinni textalýsingu á Vísi.is en hana má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×