Fótbolti

Heimir: Einbeitingin ekki í lagi ef við eyðum öllum tímanum í að vera frægir

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Heimir Hallgrímsson á æfingu landsliðsins í dag.
Heimir Hallgrímsson á æfingu landsliðsins í dag. vísir/vilhelm
Enn bætist í fulltrúa erlendra fjölmiðla sem fylgja strákunum okkur eftir á Evrópumótinu í fótbolta en íslenska landsliðið hefur vakið heimsathygli fyrir að vinna England og komast í átta liða úrslit mótsins.

Aragrúi af fjölmiðlamönnum hvaðanæva að úr heiminum var mættur á æfingu landsliðsins í Annecy í dag sem var síðasta opna æfingin með möguleika á viðtölum fyrir stórleikinn gegn Frakklandi í París á sunnudaginn.

„Þetta sýnir smá hvað við erum barnalegir að halda við getum verið með Mixed Zone hérna með 8.000 sjónvarpsvélar á okkur. Við erum að reyna að gera okkar besta í að vera sýnilegir og svoleiðis. Auðvitað er þetta samt bilun,“ sagði Heimir Hallgrímsson léttur í lund(a) að vanda við Vísi á æfingunni í dag.

„Við vitum það, að við erum að fara að spila við Frakka og það er stórt. Frakkar eru duglegir að fylgja sínu liði. Það eru þrjár til fjórar sjónvarpsstöðvar í gangi allan sólarhringinn með fréttir um EM þannig þetta er eðlilegt.“

Á blaðamannafundi þjálfaranna í gær sagði Lars Lagerbäck frá því að hópur leikmanna hefði mætt of seint í kvöldmat á þriðjudagskvöldið en Svíinn hafði engan húmor fyrir því að menn fylgdu ekki settum reglum.

Aðspurður um þessi orð Lars í gær sagði Heimir við Vísi: „Ef þú ætlar að lesa allt sem er skrifað um íslenska landsliðið og hvern einasta leikmann myndi þér ekki duga dagurinn til þess,“ sagði Eyjamaðurinn.

„Ef við ætlum að eyða öllum tímanum okkar eða öllum deginum í að að vera frægir þá erum við ekki að einbeita okkur að því sem skiptir máli. Nú er aðalatriðið að einbeita sér að Frakklandsleiknum. Það gerum við með því að ýta öllu öðru til hliðar.“

„Það er ástæðan fyrir því að við erum ekki allan daginn á blaðamannafundum eða í viðtölum. Fyrir utan þann tíma viljum við ekki vera í því. Ef við erum að gera eitthvað annað erum við ekki að einbeita okkur að því sem skiptir máli á þessum tímapunkti,“ sagði Heimir Hallgrímsosn.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Ragnar: Ekkert til í sögunum um Liverpool

Varnarmaðurinn Ragnar Sigurðsson hefur verið einn allra besti leikmaður Íslands á EM í Frakklandi og vakið víða athygli fyrir frammistöðu sína.

Mörkin koma alls staðar að

Tíu leikmenn hafa komið með beinum hætti að mörkunum sex sem Ísland hefur skorað á EM í Frakklandi með því að annað hvort að skora eða leggja upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×