Fótbolti

Heimir: Ætla ekki að svara sömu tannlæknaspurningunni 18 sinnum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Heimir Hallgrímsson var hress á æfingu Íslands í dag.
Heimir Hallgrímsson var hress á æfingu Íslands í dag. vísir/vilhelm
Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfarar Íslands, gáfu sér mikinn tíma til að svara fjölmörgum spurningum blaðamanna eftir æfingu liðsins í Annecy í dag.

Þjálfarnir voru ekkert að flýta sér og fóru í hvert viðtalið á fætur öðru. Til Annecy eru komnir blaðamenn frá Englandi, Kína, Svíþjóð, Portúgal og fleiri löndum en fjölmiðlaáhuginn á bara eftir að aukast eftir að liðið komst áfram.

Nú er íslenska liðið að fara að spila við það enska í Nice á mánudaginn en eins og flestir vita er umfjöllun um fótbolta gríðarlega mikil á Englandi og ekki allir blaðamenn þar barnanna bestir.

Heimir Hallgrímsson hefur verið spurður nokkrum sinnum á mótinu um hvernig það er að samhæfa landsliðsþjálfun við störf sín sem tannlæknir í Vestmannaeyjum.

„Þetta er orðið ansi þreytt,“ sagði Heimir við Vísi eftir æfingu Íslands í dag en hann veit að hann má búast við þeim nokkrum til viðbótar þegar enska pressan mætir á blaðamannafundi íslenska liðsins næstu daga.

„Við höfum verið ansi opnir með þetta allt saman og verið með hittinga eins og þennan nokkrum sinnum. Þetta er meira aðgengi en flestir hafa boðið upp á held ég.“

„Núna þurfum við að takmarka aðganginn aðeins og passa okkur. Ég veit það kemur sér líka illa fyrir íslensku pressuna en þetta er eitthvað sem við verðum að gera. Ég ætla ekki að svara sömu tannlæknaspurningunni 18 sinnum á sama blaðamannafundinum,“ sagði Heimir Hallgrímsson.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

KSÍ fær 481 milljón fyrir árangurinn á EM

Íslenska landsliðið er verðlaunað fyrir árangurinn á EM í Frakklandi og hefur KSÍ nú þegar tryggt sér 3,5 milljónir evra í árangurstengdar greiðslur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×