Innlent

Heimilishundurinn hrakti þjóf á brott

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Þjófurinn var ekki lengi að láta sig hverfa eftir að hann hafði náð að losa sig frá hundinum.
Þjófurinn var ekki lengi að láta sig hverfa eftir að hann hafði náð að losa sig frá hundinum. Vísir/Getty
Íbúi á Suðurnesjum vaknaði upp í fyrrinótt við að innbrotsþjófur var kominn hálfur inn um svefnherbergisgluggann hjá viðkomandi.

Heimilishundurinn ákvað þá að taka á móti hinum óboðna gesti með sínum hætti, náði taki á honum og beit hann í hendurnar. 

Þjófurinn var ekki lengi að láta sig hverfa eftir að hann hafði náð að losa sig frá hundinum. 

Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×