Menning

Heimildarverk sem yljar fólki um hjartarætur

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Jenný Lára og Jóhann Ágúst á einni af fyrstu æfingunum á Elska.
Jenný Lára og Jóhann Ágúst á einni af fyrstu æfingunum á Elska.
Leikverkið Elska – ástarsögur Norðlendinga verður frumsýnt á morgun, 11. nóvember, í Hofi á Akureyri.

Jenný Lára Arnórsdóttir er annar tveggja leikenda á sviðinu og upphafsmaður að sýningunni því árið 2013 flutti hún forleik að þessu stykki. Nú hefur hún fengið til liðs við sig Jóhann Axel Ingólfsson leikara sem einnig sér um tónlistina, Agnesi Wild leikstjóra og Evu Björgu Harðardóttur búningahönnuð.



„Þetta er eiginlega nýtt verk,“ segir Jenný Lára.  „Skemmtilegt heimildarverk sem yljar fólki um hjartarætur.“

Hún segir leikhópinn hafa í sumar og haust hafa safnað saman raunverulegum ástarsögum para víða af Norðausturlandi.

„Handritið er unnið orðrétt upp úr viðtölum sem tekin voru við pör og tónlist notuð til að magna sögurnar upp. Þetta er því sýning sem er sprottin upp úr okkar umhverfi á norðurhjara veraldar.“

Við sem vinnum í þessu erum öll trúlofuð eða gift og notum setningar úr okkar samböndum inn á milli. Okkur langar líka að fá setningar frá áhorfendum og skrifa þær niður þannig að þeir fá að vera smá þátttakendur í sýningunni.“

Sýningar verða einungis á morgun og laugardag, 11. og 12. nóvember, og hefjast klukkan 20 bæði kvöldin.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 10. nóvember 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×