Sport

Heimavallarsigur í fimmgangi á HM í Herning

Bjarni Þór Sigurðsson skrifar
Hér má sjá Reyni Örn á hestinum Greifa.
Hér má sjá Reyni Örn á hestinum Greifa. Vísir/Jón Björnsson
Dramatíkin heldur áfram á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Herning í Danmörku. Spennandi keppni fimmgangi lauk í dag.

Það er hin danska Julie Christiansen á Hug frá Flugumýri II, sem stendur efst fyrir úrslitin á sunnudag. Julie er núverandi heimsmeistari í slaktaumatölti. Hún þurfti að grípa til varahests þar sem keppnishestur hennar forfallaðist á síðastu stundu, en það kom greinilega ekki að sök.

Fulltrúi íslands, Reynir Örn Pálmason á Greifa frá Holtsmúla 1, átti jafna og góða sýningu. Hann lenti í 2. til 3. sæti með einkunnina 7,03 rétt eins og Jessica Rydin frá Svíþjóð.

Hugur frá Flugumýri II er sannarlega flottur hestur.Vísir/Jón Björnsson
Eyjólfur Þorsteinsson á hesti sínum Oliver frá Kvistum slapp naumlega inn í B-úrslit með einkunnina 6,40 í 10. til 12. Eyjólfu lenti í vandræðum með niðurtöku á skeiði og var það honum dýrt, en Óíiver og Eyjólfur standa efstir á heimslistanum í dag.

Það verða því sjö knapar sem berjast um sæti í A-úrslitum í fimmgangi á þessu móti í stað fimm eins og venjan er. Eyjólfur á því enn möguleika að komast í A-úrslitin.

Ungmennið Gústaf Ásgeir Hinriksson á Geisla frá Svanavatni átti ágæta sýningu en smá feill í fyrri skeiðspretti hefur sennilega kostað hann einhverjar kommur. Hann á því vonandi inni fyrir úrslitin í ungmennaflokknum. Fyrir sýningu sína í dag hlaut Gústaf 6,43 og er fjórði.

Einbeittur Eyjólfur Þorsteinsson og Óliver.Vísir/Jón Björnsson
Mikill viðsnúningur var í veðurfarinu hér í Herning frá í gær. Rigningu á þessu móti er lokið að sögn mótshaldara, sól og blíða það sem eftir er af mótinu. Mikið hefur fjölgað á mótsvæðinu í dag. Greinilegt er að mikið af íslendingum hafa bæst við og von á fleirum á morgun og fram að helgi. Fyrir áhugasama er bara að skella sér í flug og mæta á svæðið.

Dómar kynbótahrossa, sem frestað var í gær stendur yfir og klárast í kvöld. Yfirlitssýning kynbótahrossa fer svo fram á morgun.

A-úrslit á sunnudag

1. Julie Christiansen [DK] - Hugur frá Flugumýri II - 7,10

2. Reynir Örn Pálmason [IS] - Greifi frá Holtsmúla 1 - 7,03

2. Jessica Rydin [SE] - Jórik från Lönneberga [] 7,03

4. Magnús Skúlason [WC] [SE] - Hraunar frá Efri-Rauðalæk - 7,00

5. Rasmus Møller Jensen [DK] - Farsæll vom Hrafnsholt - 6,80

B- úrslit á laugardag

6. Mara Daniella Staubli [CH] - Hlébarði frá Ketilsstöðum - 6,60

7. Hans-Christian Løwe [DK] - Eldjárn fra Vivildgård - 6,57

8. Johannes Hoyos [AT] - Hrafn vom Schloßberg - 6,53

9. Steffi Svendsen [DK] - Ljóni frá Ketilsstöðum - 6,47

10 - 12. Eyjólfur Þorsteinsson [IS] - Oliver frá Kvistum – 6,40

10 - 12. Piet Hoyos [AT] - Glymur frá Flekkudal - 6,40

10 - 12. Chrissy Seipolt [US] - Dreki vom Wotanshof – 6,40

Ungmennaflokkur úrslit

1. Marvin Heinze [DE] - Myrkvi vom Quillerhof - 6,87

2. Kristian Tofte Ambo [DK] - Tónn frá Ólafsbergi - 6,77

3. Lara Balz [CH] - Trú från Sundäng - 6,50

4. Gústaf Ásgeir Hinriksson [IS] - Geisli frá Svanavatni - 6,43

5. Ingrid Marie Larsen [NO] - Dimmey fra Jakobsgården - 6,33

6. Sasha Sommer [DK] - Snar frá Kjartansstöðum - 6,33

Hér má sjá öll úrslit mótsins.

Fljúgandi skeið hjá Gústaf og Geisla.Vísir/Jón Björnsson
.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×