Heilsa

Heimatilbúið tannkrem án skaðlegra aukaefna

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Tannkrem er nauðsynlegt til þess að halda tönnunum hreinum og heilbrigðum. Mörg hefðbundin tannkrem eru þó full af skaðlegum aukaefnum sem geta haft slæm áhrif á heilsuna. Fyrir þá sem vilja forðast að nota öll eiturefni er sniðugt að prófa að búa til sitt eigið tannkrem.

Hráefni sem þarf í tannkremið:

3 matskeiðar lífræn kókosolía

3 matskeiðar matarsódi

10 dropar piparmyntu ilmkjarnaolía

3-4 dropar fljótandi stevía

Leiðbeiningar:

Kókosolían þarf að vera við stofuhita. Blandið kókosolíunni, matarsódanum, piparmyntuolíunni og stevíunni saman í skál. Hrærið saman þangað til að áferðin er orðin mjúk og engir kekkir eru lengur í blöndunni.

Hellið blöndunni í hreina glerkrukku með loki.

Notið um það bil teskeið til þess að bursta tennurnar.

Burstið tennurnar eins og venjulega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×