Innlent

Heimasíða WOW air réð ekki við álagið

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Svona leit þetta út í lengri tíma.
Svona leit þetta út í lengri tíma. skjáskot
Heimasíða flugfélagsins WOW air hrundi í kvöld eftir að Ísland vann sigur á Englandi í sextán liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu. Yfir tvöfalt fleiri fóru inn á vefsíðu flugfélagsins í kvöld en eftir leik Íslands og Austurríkis, að sögn Svanhvítar Friðriksdóttur, upplýsingafulltrúa WOW air.

„Það er svo mikið álag núna að vefurinn ræður ekki við þetta. En við erum að gera allt sem við getum til þess að laga þetta,“ segir Svanhvít í samtali við Vísi. „Ég get ekki gefið upp hversu margir eru á vefnum okkar, en það sem ég get sagt er að þeir eru tvöfalt fleiri en í síðasta leik.“

Ljóst er því að eftirspurn eftir flugferðum til Parísar er mikil, og fer því eflaust hver að verða síðastur að panta sér flugmiða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×