Golf

Heimamaðurinn Stephen Gallacher hlakkar til að leika í Rydernum

Stephen Gallacher verður í sviðsljósinu á Gleneagles
Stephen Gallacher verður í sviðsljósinu á Gleneagles Getty
Það vakti töluverða athygli þegar að Ryder-fyrirliði Evrópu, Paul McGinley, valdi Skotann Stephen Gallacher í Ryder-liðið á dögunum en þetta sögufræga mót fer fram á Gleneagles vellinum í Skotlandi og hefst í næstu viku.

Mörgum þótti það djörf ákvörðun hjá McGinley að velja Gallacher í liðið fram yfir fyrrum besta kylfing heims, Luke Donald, en Gallacher hefur verið hluti af Evrópumótaröðinni í rúmlega 18 ár og aðeins sigrað á þremur mótum á ferlinum.

Hann hefur þó átt mjög gott tímabil í ár en hann hefur endað meðal tíu efstu manna í átta mótum á Evrópumótaröðinni og þá sigraði hann á Dunhil Links meistaramótinu í janúar. Paul McGinley treystir því Gallacher greinilega vel en hann sagði við fréttamenn á dögunum að frammistaða Skotans á Opna ítalska meistaramótinu, viku áður en fyrirliðavalið fór fram, hafi sannfært sig um að velja hann í liðið.

Stephen Gallacher hafði leikið mjög stöðugt og gott golf allt tímabilið en fyrir Opna ítalska meistaramótið vissi hann hvað hann þurfti að gera. Hann endaði í þriðja sæti og lék frábært golf undir mikilli pressu sem er nákvæmlega það sem þarf að gera á Gleneagles í Rydernum sjálfum.

Það á þá eflaust eftir að hjálpa Gallacher að Gleneagles völlurinn er stutt frá æskuheimili hans og skoskir golfáhugamenn eru mjög stoltir af því að hafa heimamann í Ryder-liðinu. Sjálfur segist hann ætla að njóta þess að leika fyrir framan landa sína sem eiga eftir að styðja vel við bakið á honum en á sama tíma þurfi hann að höndla aukna pressu.

Ég er lítið fyrir sviðsljósið en þegar að ég heimsótti Edinborg fyrir stuttu þá voru strætisvagnar með andlitinu á mér út um allt með auglýsingum um Ryder-bikarinn. Það er mikil stemning fyrir honum í Skotlandi og þótt að þetta eigi eftir að vera stressandi þá er ég viss um að þetta á eftir að verða mögnuð lífsreynsla sem ég á aldrei eftir að gleyma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×