Matur

Heimagert heilsu-Snickers

sigga dögg skrifar
Vísir/Skjáskot

Þessir hollustubitar eru virkilega gómsætir og kjörnir sem sætmeti í hverskonar hittinga og á ferð og flugi.

Uppskriftin er í nokkrum skrefum og ítarlegt myndband fylgir svo hér að neðan.

Þessi er kjörin til að geyma og deila!

Sætt án sykurs Snickers

Hráefni í grunn:

65 gr agave síróp

240 gr möndlusmjör

8-10 msk möndlumjöl

klípa af salti

1 tsk vanilludropar

Hráefni í karmelluna:

180 gr steinlausar döðlur

90 gr möndlusmjör eða hnetusmjör

4-7 msk vatn

4 msk kókosolía

100 gr ristaðar möndlur eða hnetur

Súkkulaðiðhúð:

450 gr dökkt súkkulaði

Aðferð:

1. Hrærðu saman hráefnum í grunn í skál

2 Dreifðu á plötu með álpappír eða bökunarpappír og kældu inni í frysti þar til harðnar

3. Hráefninu í karmelluna setur þú í matvinnsluvél þar tal maukast vel saman

4. Skerðu grunninn í hæfilega stór stykki

5. Smyrðu karmellunni ofan á hvert stykki

6. Settu ristaðar möndlur/hnetur ofan á karmelluna og skelltu inn í kæli

7. Bræddu súkkulaði í vatnsbaði (skál yfir heitu vatni) 

8. Taktu hvert stykki fyrir sig og settu súkkulaði yfir með skeið og geymdu svo í kæli

Njóttu!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×