Heima hlusta ég á popptónlist Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 21. febrúar 2016 10:15 Magnús hlakkar til að syngja í Hörpunni.
Hefur þú alltaf búið í Austurríki, Magnús? Já, ég er fæddur og uppalinn í Vínarborg, en kom til Íslands á hverju sumri þangað til ég var sex ára. Síðan hef ég komið þrisvar. Það sem ég elska mest við Ísland er hin óspillta náttúra og frelsistilfinningin sem tengist henni. Ég dýrka hálendið, til dæmis Laka og Sprengisand! Í fyrrasumar fór ég í hestaferð með fjölskyldunni. Það er það besta sem ég geri á Íslandi. Hvað hefur þú sungið lengi? Ég byrjaði fimm ára í blönduðum barnakór og í skóla Vínardrengjakórsins sex ára, þar voru æfingar á hverjum degi, svo byrjaði ég sem Vínardrengur 10 ára og nú er ég þrettán.„Besti vinur minn er frá Ítalíu, en mér líkar eiginlega við alla í kórnum og finnst rosalega gaman þar,“ segir MagnúsEru allir góðir vinir í kórnum? Þar sem við syngjum saman, spilum fótbolta, búum í heimavistarskóla og ferðumst saman myndast sterk tengsl milli okkar. Besti vinur minn er frá Ítalíu, en mér líkar eiginlega við alla í kórnum og finnst rosalega gaman þar. Til hvaða landa hafið þið ferðast? Ég fór í fimm vikna ferðalag til Síle og Brasilíu þegar ég var nýbyrjaður. Tveimur vikum seinna fórum við í 10 vikna ferð um Bandaríkin og Kanada og í fyrravor var ég í Japan í tvo mánuði. Líður þér eins og rokkstjörnu þegar þú ferðast um með kórnum? Nei, en stundum er okkur tekið eins og rokkstjörnum, eins og í Suður-Ameríku og Asíu. Í Síle sungum við einu sinni fyrir 12.000 manns. Hvað ætlar þú að gera þegar þú verður stærri? Mig langar að verða leikari eða hljómsveitarstjóri. En fyrst langar mig í skóla á Íslandi. Hvaða tónlist finnst þér skemmtilegust? Mér finnst gaman að syngja messur í Hofburg og líka polka í Musikverein en heima hlusta ég á popptónlist. Ég er – eins og Árni frændi orðar það – alæta á tónlist. Hlakkar þú til að syngja fyrir Íslendinga? Já, það verður æðislegt. Ég hef sungið í Carnegie Hall, Suntory Hall og Musikverein en það verður stór stund fyrir mig að syngja fyrir Íslendinga í Hörpu! Ég sýndi strákunum myndir af Hörpu, þeir sögðu bara VÁ!
Mest lesið „Vildi greinilega ekki að einhver úr fjölskyldunni kæmi að honum“ Lífið „Ekki lengur þræll þess að finnast ég ekki nóg“ Lífið Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi Lífið Margrét Ýr og Reynir nýtt par Lífið Talin ólíklegust til að komast áfram Lífið Gult og glæsilegt einbýlishús Sölva til sölu Lífið Nýbökuðu hjónin kíktu í kaffi til Guðna Lífið Samantha Davis er látin Lífið Myndavél frá afa algjör fjársjóður Tíska og hönnun „Æskuheimilið hans er bara rústir“ Lífið Fleiri fréttir Bauð öllum bæjarbúum í matarboð Talin ólíklegust til að komast áfram „Æskuheimilið hans er bara rústir“ Gult og glæsilegt einbýlishús Sölva til sölu „Ekki lengur þræll þess að finnast ég ekki nóg“ Magnea fór upp á fjall á tryllitæki Margrét Ýr og Reynir nýtt par „Vildi greinilega ekki að einhver úr fjölskyldunni kæmi að honum“ Samantha Davis er látin Höfundur Kaupalkabókanna með krabbamein í heila Eva Ruza og Gunna Dís inn fyrir Gísla og Felix Nýbökuðu hjónin kíktu í kaffi til Guðna Bergur og Inga Lóa selja eitt glæsilegasta hús Garðabæjar Sofia Vergara með fjallmyndarlegum lækni Gunna Dís kynnir Eurovision í stað Gísla Marteins Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi Fengu sér miðnætursnarl í Skotlandi Ási selur íbúðina eftir sambandsslitin Laufey í Vogue ásamt Rihönnu Gengur hundrað kílómetra með hundrað kílóa sleða Bassi Maraj og Patrekur í svínslegu stuði Með milljónir fylgjenda og lætur drauminn rætast í London Missti allar tærnar þrjátíu árum eftir að konan skar undan honum „Ég fæ það of fljótt, hvað get ég gert?“ Eyfi flutti Nínu með Hinsegin kórnum Steldu stíl nýja ráðherrans Litfögur listamannaíbúð í Hlíðunum Systkinin í Celebs frumfluttu lag Barnamenningarhátíðar Galvaskar á Gugguvaktinni Ragnar dillaði sér á Dillon og nýr ráðherra naut lífsins í Borgartúni Sjá meira