Innlent

Heilsulind sem varð að geymslu fyrir ruslatunnur

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Viðbygging við Kórinn í Kópavogi sem átti að hýsa eina glæsilegustu líkams- og heilsuræktarstöð landsins er í dag notuð sem geymsla undir ruslatunnur Kópavogsbæjar. Bæjarstjóri Kópavogs telur ólíklegt að húsnæðið muni nokkurn tíma þjóna upprunalegum tilgangi.

Viðbyggingin við fjölnota íþróttahöllina Kórinn í Kópavogi er yfir 3000 fermetrar að stærð. Metnaðarfull áform Knattspyrnuakademíu Íslands ehf., sem knattspyrnuhetjurnar Arnór og Eiður Smári Guðjohnsen, Ásgeir Sigurvinsson og Guðni Bergsson komu meðal annars að, stöðvuðust í kjölfar efnahagshrunsins og tók Kópavogsbær við íþróttamannvirkinu.

Viðbyggingin átti að hýsa eina glæsilegustu líkams- og heilsuræktarstöð landsins en er í dag geymsla fyrir ruslatunnur Kópavogsbæjar og ýmsan skólabúnað, svo sem borð og stóla. Greint var frá þessu á vefsíðu Kópavogsblaðsins um helgina. Þegar gengið er niður á neðri hæðina blasir við draumur sem ekki rættist um glæsilega heilsulind með heitum pottum, gufubaði og 25 metra langri sundlaug sem var sérstaklega hönnuð með endurhæfingu íþróttamanna í huga.

„Þetta fylgdi með í kaupunum og við höfum engin plön uppi um að opna líkamsræktarstöð þarna líkt og var fyrirhugað,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs. „Hins vegar eru fjölmörg tækifæri sem við sjáum fyrir okkur í framtíðinni en það þurfa að vera réttu verkefnin.“

Ármann telur líklegast að viðbyggingunni verði breytt í grunn- eða framhaldsskóla þegar fram líða stundir. Ekki er gert fyrir framkvæmdum í náinni framtíð.

Er heppilegt að þessi bygging sé notuð sem geymsla fyrir ruslatunnur?

„Húsið er þarna og okkur vantar pláss undir dót. Við hefðum ekki byggt svona geymsluhúsnæði ef þú ert að spyrja að því,“ svarar Ármann. „Til skamms tíma þá nýtum við það undir ýmislegt sem við þurfum að geyma hvort sem er.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×