Lífið

Heilög Sesselja heiðruð

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Hluti hópsins sem raðar sér á kirkjurnar: Dagný Björk Guðmundsdóttir, Karlotta Dögg Jónasdóttir, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir, Jara Hilmarsdóttir, Hildur Kristín Thorstensen, Salný Vala Óskarsdóttir, Marta Kristín Friðriksdóttir og Sigríður Rósa Snorradóttir. Mynd/Jón Kristinn Cortez
Hluti hópsins sem raðar sér á kirkjurnar: Dagný Björk Guðmundsdóttir, Karlotta Dögg Jónasdóttir, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Guðný Guðmundsdóttir, Jara Hilmarsdóttir, Hildur Kristín Thorstensen, Salný Vala Óskarsdóttir, Marta Kristín Friðriksdóttir og Sigríður Rósa Snorradóttir. Mynd/Jón Kristinn Cortez
Söngvarar þurfa að styrkja þindina og það er eflaust ástæða þess að Marta Kristín Friðriksdóttir er á hlaupum í Skerjafirðinum þegar ég slæ á þráðinn til hennar.  

Hún er ein þeirra nemenda Söngskólans í Reykjavík sem á morgun og næsta sunnudag ætla að syngja einsöng eða tvísöng í kirkjum á höfuðborgasvæðinu.

Slíkur viðburður hefur verið árlegur frá 1998 og söngurinn er helgaður heilagri Sesselju, verndara tónlistarmanna.

Þeir sem verða í Laugarneskirkju í  messunni klukkan 11 munu njóta söngs Mörtu. „Ég æfði nokkur lög með organistanum og sagði að hann mætti velja úr þeim með prestinum. Mér finnst bara skemmtilegt að láta koma mér á óvart. Þetta eru allt lög sem ég kann vel,“ segir hún og nefnir Ave Maríu Kaldalóns sem dæmi.

Marta er enginn nýgræðingur þegar kemur að kirkjusöng, enda segir hún hann undirstöðuatriði í söngnámi. Hún er í kór hjá Möggu Pálma og fór með honum til Ítalíu og kom meðal annars fram í Péturskirkjunni og Vatíkaninu.

Grunnnáminu í söng er lokið hjá Mörtu. Hún tók 8. stig síðasta vor og stefnir til Vínar næsta haust. „Það er draumur flestra sem fást við söng,“ segir hún.

 „Ég er að undirbúa mig undir inntökuprófið og er á 2. ári í verkfræði en ef ég kemst inn í skólann í Vín ætla ég að setja verkfræðina á pásu og leyfa söngdraumnum aðeins að lifa.“



Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 22. október 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×