Innlent

Heildarsektin tæp hálf milljón: Skiluðu bílnum niðurlútir og fóru í vörn

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Rúnar Ólafsson (t.h.), flotastjóri bílaleigunnar 4x4 Iceland Car Rental, var ekki sáttur með þær skemmdir sem glannaaksturinn hafði í för með sér.
Rúnar Ólafsson (t.h.), flotastjóri bílaleigunnar 4x4 Iceland Car Rental, var ekki sáttur með þær skemmdir sem glannaaksturinn hafði í för með sér.
Já bíllinn var töluvert skemmdur. Hann var allur sandblásinn að neðan,” segir Rúnar Ólafsson, flotastjóri 4x4 Iceland Car rental, en bíll á þeirra vegum vakti athygli í síðustu viku þegar ferðamenn léku sér að því að keyra hann glannalega á Sólheimasandi. Aksturinn náðist á myndband sem hefur gengið eins og eldur í sinu um veraldarvefinn. Mennirnir greiddu 250 þúsund króna sekt hjá lögreglu en auk þess þurftu þeir að greiða bílaleigunni fyrir viðgerðarkostnað. Sá reikningur hljóðaði upp á 180 þúsund krónur. Því kostaði glannaskapurinn mennina um 430 þúsund krónur í heildina.

Þetta sást allt á myndbandinu. Þeir voru bara að leika sér á bílnum og voru að skemma bílinn.” Rúnar segir mennina hafa verið niðurlúta og hálf aulalega þegar þeir komu að skila bílnum.

Click here for an English version.

Camilla Rut, starfsmaður bílaleigunnar 4x4 Iceland car rental.
Byrjuðu á að fara í vörn

Camilla Rut Rúnarsdóttir, starfsmaður bílaleigunnar, var viðstödd þegar mennirnir komu.

Þeir báru ekki höfuðið hátt eins og maður segir.” Camilla bendir á að trygging sem kallast gravel protection eða trygging gegn möl sem hægt er að kaupa fyrir bílana gildi ekki þegar kemur að glannaakstri. „Við vissum af hverju bíllinn var tjónaður og útaf myndbandinu þá var þetta ekki tryggt.” Hún segir að lögregla hafi tekið á móti mönnunum þegar þeir komu að skila bílnum.

Þeir byrjuðu á að fara í vörn, þetta eru náttúrulega háar upphæðir sem þeir eru að borga. Þeir sögðu eitthvað: „Hvernig vitiði hvernig þessar skemmdir gerðust, við keyrðum á möl eftir að myndbandið var tekið?” En þetta var náttúrulega alveg augljóst,” segir Camilla. Einn gæinn var svona en hinn vissi alveg upp á sig sökina og þaggaði niður í vini sínum.” Camilla segir að þeir hafi síðan verið teknir niður á lögreglustöð en að þeir hafi helst haft áhyggjur af því hversu lengi yfirheyrslur stæðu af því að þeir hygðust skemmta sér í miðbæ Reykjavíkur um kvöldið. Þetta voru náttúrulega bara einhverjir tappar frá Kaliforníu,” segir Camilla og hlær.

Hún sagði mönnunum frá umfjöllun í fjölmiðlum hér á landi og segir hún þá hafa verið miður sín þegar þeir gerðu sér grein fyrir áhrifum glannaakstursins á náttúruna. Þeir báðu mig um að senda sér linkinn á fréttina.” Sem hún og gerði. 

Bílar koma oft skemmdir tilbaka

Við lendum í því á hverjum degi að það séu einhverjar skemmdir á bílunum.” Rúnar segist þó ekki hafa lent í því áður að bíll hafi skemmst af þessum ástæðum. En maður veit auðvitað aldrei hvað fólk er að gera á bílunum.” Hann segist brýna vel fyrir ferðamönnum hvað megi og hvað megi ekki þegar bíll er leigður. Til dæmis eru ákveðin svæði sem eru bönnuð hjá okkur, til að mynda Þórsmörk. Það breytir því samt ekki að fólk fer þangað.”

Hann segir það með ólíkindum hvað sumum dettur í hug. Það er mikið frelsi sem þú færð hérna sem ferðamaður en því fylgir ábyrgð. En fólk misnotar þetta oft.”


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×