Innlent

Heilbrigðiskerfið verði aðalkosningamálið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kári Stefánsson afhendir í dag undirskriftir yfir 85 þúsund Íslendinga sem krefjast hærri framlaga til heilbrigðiskerfisins.
Kári Stefánsson afhendir í dag undirskriftir yfir 85 þúsund Íslendinga sem krefjast hærri framlaga til heilbrigðiskerfisins.
Stjórnvöld fá í dag afhentar undirskriftir meira en 85 þúsund Íslendinga sem krefjast þess að Alþingi verji árlega 11 prósentum af vergri landsframleiðslu til rekstur heilbrigðiskerfisins. Það er Kári Stefánsson, læknir og forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sem hefur haft veg og vanda af söfnun undirskriftanna.

Kári segir þörfina á betrumbótum vera úti um allt í heilbrigðiskerfinu og vill að umræðunni verði haldið áfram. „Ég ætla að gera mitt besta til þess að sjá til þess að þetta verði aðalkosningamálið,“ segir Kári. En eins og fram hefur komið er ráðgert að kosningar fari fram í haust. Kári segir fólk þó verða mest vart við þörfina á betrumbótum á Landspítalanum. „Hann er fámenntur, hann er illa tækjum búinn, hann verður að ströggla við það að kaupa nýjustu lyfin og hann er illa hýstur,“ segir Kári.

Til viðbótar við þetta segir Kári að greiðsluþátttaka sjúklinga sé gjörsamlega óásættanleg. „Heilbrigðisþjónusta á Íslandi á að vera ókeypis. Við viljum að það sé hlúð að lösnu og meiddu fólki í landinu,“ segir Kári og bætir við að aldrað fólk hafi meiri tilhneigingu til þess að vera lasið en ungt fólk. Eldra fólk hafi líka að jafnaði lægri tekjur en þeir sem yngri eru. „Þannig að greiðsluþátttakan lendir líklega mest á þeim sem síst skyldi. Það eru þó ekki nema rétt rúmir sex milljarðar sem myndi kosta að gera heilbrigðisþjónustu ókeypis og mér fyndist sex milljörðum ekki betur varið í nokkurn skapaðan hlut í okkar þjóðfélagi,“ segir Kári.

Kári segir að dagskráin í dag, þar sem undirskriftirnar verða afhentar, verði einföld. Fulltrúar allra stjórnmálaflokkanna hafi boðað komu sína og formenn flestra þeirra. „Þannig að menn virðast vera að bregðast á jákvæðan hátt við þessu. Ég ætla að líta á það ósköp einfaldlega sem merki þess að stjórnmálamennirnir skilji að þetta skipti fólkið í landinu máli,“ segir Kári.

Í erindi sem Kári birti á vefnum endurreisn.is, þar sem undirskriftanna var safnað, kemur fram að Íslendingar eyði því sem nemur 8,7% af vergri landsframleiðslu í heilbrigðismál og það sé langt undir meðaltali á Norðurlöndum. Á síðasta aldarfjórðungi hafi stjórnvöld vannært íslenskt heilbrigðiskerfi, að því marki að það sé ekki lengur þess megnugt að sinna hlutverki sínu sem skyldi.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 30. apríl.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×