Innlent

Heilbrigðiseftirlitið skoðar kirkjuklukkur

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
ÍEinn segir kirkjuklukkuhringingar lækka fasteignaverð en annar segir þær jafn notalegar og fuglasöng.
ÍEinn segir kirkjuklukkuhringingar lækka fasteignaverð en annar segir þær jafn notalegar og fuglasöng. Fréttablaðið/Hari
„Í staðinn fyrir að hringja kirkjuklukkum fyrir allar messur væri það eingöngu gert við stærri athafnir svo sem brúðkaup og jarðarfarir,“ segir í tillögu sem borgarbúi setur fram á vefnum Betri Reykjavík.

Tillagan var ásamt mörgum tillögum af sama vettvangi tekin fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur á miðvikudag. Ráðið ákvað að óska umsagna frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um málið. Í umræðum um kirkjuklukkuhringarnar á Betri Reykjavík eru sett fram rök bæði með og á móti tillögunni.

Óþægilegt í þynnkunni

„Í dag er það frekar talin kvöð en kostur að búa nálægt kirkju. Klukknahljómurinn getur verið sérstaklega óþægilegur fyrir til dæmis fólk sem vinnur á næturvöktum, eða yngstu börnin sem sofa á þessum tíma. Að ég tali nú ekki um þynnkuna,“ segir einn sem er fylgjandi því að dregið verði úr hringingunum.

Annar segir að kirkjuklukkur séu hluti af umhverfinu og að alls ekki eigi að setja hindranir á notkun þeirra.

Fagur og hátíðlegur hljómur

„Mér finnst hljómur kirkjuklukkna afar fagur og hátíðlegur. Mér finnst það tilheyra stórborg að heyra klukkur hringja til messu eða annarra athafna. Þegar ég var í Tyrklandi fannst mér það setja skemmtilegan svip á borgina að heyra bænaköllin úr moskunum jafnvel þótt ég sé ekki múslimi.“

Í tillögunni er gert ráð fyrir því að við venjulegar messur – og mögulega við skírnir og fermingar – sé kirkjuklukkum ekki hringt heldur leikinn klukknahljómur í hátalarakerfum inni í kirkjunni.

Notalegt eins og fuglasöngur

„Ég er alveg til í að samgleðjast/samhryggjast fólki sem er að fagna/syrgja brúðkaupi/láti ástvina sinna og leyfa þeim að hringja kirkjuklukkunum á þeirri stóru stund. En alla sunnudaga væri nær að spila bara fyrir þá sem eru á leið til messu.“

Annar segir að svo lengi sem klukknaspil sé ekki ofnotað, eins og verið hafi fyrst í Hallgrímskirkju, sé það aðeins eðlilegt umhverfishljóð sem flestir hætti að heyra þegar þeir orðnir vanir því. „Kirkjuklukkur eru bara jafn notalegar og fuglasöngur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×