Innlent

Heiðveig María um atkvæðagreiðsluna: "Ég held að þetta verði mjög tæpt“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Atkvæðagreiðslu sjómanna lýkur annað kvöld.
Atkvæðagreiðslu sjómanna lýkur annað kvöld. Vísir/Vilhelm
Heiðveig María Einarsdóttir, sjómaður og viðskiptalögfræðingur, telur að atkvæðagreiðslan um nýgerðan kjarasamning sjómanna muni verða mjög jöfn.

Hún segir að umræða meðal sjómanna um samningana hafi verið tryllt í dag, en menn séu ósáttir við fyrirkomulagið á atkvæðagreiðslunni, en atkvæðagreiðslan fer ekki fram með rafrænum hætti og mun henni ljúka klukkan sex annað kvöld. Knappur tími sé fyrir félagsmenn til þess að kynna sér efni samninganna.

„Ég skil ekki alveg lætin í þessu. Það eru 100 dagar síðan þetta byrjaði í október, 66 dagar síðan verkfall hófst, af hverju þarf þetta allt í einu að gerast á núll einni? Og um helgi þar að auki líka?

„Menn ná ekkert að kynna sér þetta almennilega. Það hefur komið í ljós í þessum felldu samningum, þeir eru illa fram settir, þeir eru illa skrifaðir og það gefur augaleið að þegar þú ert búinn að keyra fólk í tuttugu tíma, þrjá daga í röð þá getur þetta ekki komið almennilega út,“ segir Heiðveig María.

Algjör þvæla

„Þetta er bara algjör þvæla, frá upphafi til enda, öll þessi atburðarás og endalaus vanvirðing. Það er upplifunin. Ég er búinn að fá svona 120 einkaskilaboð frá ókunnugum sjómönnum, með spurningum um hvort að þetta sé svona í alvöru, sem furða sig á þessu, hvort að kosningin sé lögleg og í lagi.“

Aðspurð um hvernig hún telji að atkvæðagreiðslan um samningana fari, segir Heiðveig að munurinn verði knappur og þykir henni samningurinn ekki merkilegur.

„Þetta verður mjög tæpt, það fer eftir því hvernig menn selja þetta og hversu þreyttir menn eru orðnir. Umfram allt er þetta bara algjörlega glataður samningur og eins og einhver sagði: „Fínt að fá nokkra vettlinga, buxur og kókópöffspakka fyrir þetta helvítis tveggja mánaða verkfall. Það er allt sem þetta er,“ segir Heiðveig María.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×