Körfubolti

Heiðrún þjálfar KR næsta vetur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Myndin var tekin við undirritun samningsins. Frá vinstri við borðið eru Halldór Karl Þórsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna, Heiðrún Kristmundsdóttir og Guðrún Kristmundsdóttir formaður körfuknattleiksdeildar KR. Fyrir aftan þær standa þeir leikmenn sem endurnýjuðu samninga sína fyrir næsta vetur; Perla Jóhannsdóttir, Gunnhildur Bára Atladóttir, Kristjana Pálsdóttir, Ragnhildur Arna Kristinsdóttir, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir og Rannveig Ólafsdóttir.
Myndin var tekin við undirritun samningsins. Frá vinstri við borðið eru Halldór Karl Þórsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna, Heiðrún Kristmundsdóttir og Guðrún Kristmundsdóttir formaður körfuknattleiksdeildar KR. Fyrir aftan þær standa þeir leikmenn sem endurnýjuðu samninga sína fyrir næsta vetur; Perla Jóhannsdóttir, Gunnhildur Bára Atladóttir, Kristjana Pálsdóttir, Ragnhildur Arna Kristinsdóttir, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir og Rannveig Ólafsdóttir. Mynd/Fésbókarsíða KR
Heiðrún Kristmundsdóttir hefur tekið við þjálfun meistaraflokksliðs kvenna hjá KR en liðið spilar í 1. deildinni næsta vetur.

Heiðrún er aðeins 24 ára gömul og lék með Stjörnunni í Domino´s deild kvenna síðasta vetur. Heiðrún þekkir vel til hjá KR en hún var í síðasta Íslandsmeistara- og bikarmeistaraliði félagsins.

Heiðrún lék fyrst körfubolta með Ungmennafélagi Hrunamanna á Flúðum en gekk svo í raðir KR og varð bikarmeistari með liðinu árið 2009, Íslandsmeistari 2010 og Íslands og bikarmeistari með unglingaflokki kvenna 2010.

Heiðrún hélt sama ár til Bandaríkjanna þar sem hún fór í menntaskóla og þaðan í Coker háskóla í Suður Karólínuríki þar sem hún spilaði körfubolta með námi í 4 ár. Heiðrún lauk BA gráðu í sálfræði og upplýsingatækni frá Coker háskóla vorið 2015 áður en snéri aftur heim til Íslands. .

KR-liðið lenti í öðru sæti í 1. deildinni á síðasta tímabili en tapaði í úrslitaeinvíginu á móti Skallagrími. KR tók ekki sæti í Domino´s deildinni þegar það losnaði fyrr í þessum mánuði.

Heiðrún sagðist í samtali við fésbókarsíðu KR vera ánægð með að vera komin í raðir KR á ný að hún hafi fylgst með góðri stemningu í liðinu síðastliðinn vetur og hlakkar til að taka þátt í henni. Heiðrúnu til aðstoðar verður Halldór Karl Þórsson.

Á sama tíma endurnýjuðu sex leikmenn meistaraflokks samninga sína eða þær Perla Jóhannsdóttir, Gunnhildur Bára Atladóttir, Kristjana Pálsdóttir, Ragnhildur Arna Kristinsdóttir, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir og Rannveig Ólafsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×