Erlent

Heiðruðu minningu fórnarlambanna

Atli Ísleifsson skrifar
Biskupinn Jean-Philippe Nault stýrði athöfninni.
Biskupinn Jean-Philippe Nault stýrði athöfninni. Vísir/AFP
Fjöldi aðstandenda þeirra sem fórust þegar vél Germanwings var grandað í frönsku Ölpunum á þriðjudaginn komu saman í dag til að heiðra minningu hinna látnu. Sérstök minningarathöfn var haldin í franska bænum Digne þar sem kveikt var á 150 kertum, eitt fyrir hvern þann sem fórst.

Athöfnin var haldin í kirkjunni í Digne-les-Bains sem er nærri þeim stað þar sem vélinni var flogið á fjallið. Biskupinn Jean-Philippe Nault stýrði athöfninni.

Í frétt SVT kemur fram að einn aðstandenda, hinn spænski Juan Pardo, segist hafa komið frá Spáni til Digne og segir að vel hafi verið komið fram við aðstandendur fórnarlambanna. „Við viljum þakka frönskum yfirvöldum fyrir allt sem þau hafa gert. Fólk hefur komið mjög vel fram við okkur, sama hvert við komum. Ekki einu sinni leigubílstjórarnir hafa viljað fá greitt.“

Pardo missti fyrrverandi eiginkonu sína, elstu dóttur sína og barnabarn í harmleiknum. Hann segist ekki vilja ræða um orsök atburðarins. „Mér er sama hvort þetta hafi verið slys, eða hvað gerðist. Ég vil ekki vita það og hef ekki áhuga á því.“

Stór minningarathöfn verður haldin í Þýskalandi þann 17. apríl næstkomandi. Athöfnin mun fara fram í dómkirkjunni í Köln, á því svæði þaðan sem fjölmörg fórnarlömb komu. Angela Merkel Þýskalandskanslari og Joachim Gauck, forseti Þýskalands, hafa bæði boðað komu sína.


Tengdar fréttir

Vara við fordómum gagnvart þunglyndum

Sálfræðingar í Bretlandi segja umrætt þunglyndi Andreas Lubitz gæti leitt til þess að fleiri forðist það að leita hjálpar við þunglyndi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×