Lífið

Heiðra minningu rokkara í afmælisveislu

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Stóns, sem leikur lög Rolling Stones, heldur upp á 71 árs afmæli gítarleikarans Keith Richards.
Stóns, sem leikur lög Rolling Stones, heldur upp á 71 árs afmæli gítarleikarans Keith Richards. mynd/Pétur Geir Zeranico
„Þetta verður bæði skemmtilegasta afmælisveisla ársins og líka fallegasta minningarathöfn ársins,“ segir Björn Stefánsson í gervi Micks Jagger.

Hann og hljómsveitin hans, Stóns, sem leikur lög Rolling Stones, heldur upp á 71 árs afmæli gítarleikarans Keith Richards í kvöld en að sama skapi ætla þeir félagar að heiðra minningu saxófónleikarans Bobbys Keys sem féll frá fyrir skömmu. „Bobby Keys átti sama afmælisdag og Keith, 18. desember, og á því vel við að heiðra minningu hans,“ segir Bjössi.

Jens Hansson bregður sér í líki Bobbys Keys á tónleikunum í kvöld. Jens sá Keys á tónleikum á Parken árið 2005.Mynd/Daníel, Getty
„Hann var fastur meðlimur í bandinu og spilaði inn á plötur og á tónleikum með þeim, eða þangað til að Keith Richards þurfti að láta hann fara úr bandinu, því Keys hafði þá fyllt baðkar af mjög dýru kampavíni og ekki mætt út á flugvöll í kjölfarið. Hann var bara með grúppíu í kampavínsbaði, sem hann hafði eytt öllum sínum launum í. Hann kom svo aftur inn í bandið en Keith segir að hann hafi verið sinn besti vinur,“ útskýrir Bjössi. Þess má til gamans geta að Bobby og Keith er einnig fæddir sama ár, 1943.

Jens Hansson bregður sér í líki Bobbys Keys á tónleikunum. „Ég sá Bobby „live“ árið 2005 á Parken og hann stóð sig eins og hetja. Hann hélt alltaf uppi heiðri rokksaxófónleikaranna, það er einmitt það sem ég hef reynt að gera hér á landi, að halda uppi heiðri rokksaxófónleikaranna, við eigum það sameiginlegt,“ segir Jens, sem er mjög spenntur fyrir tónleikunum.

Tónleikarnir verða á Gauknum í kvöld klukkan 21.00. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×