Bíó og sjónvarp

Heiðra fólkið á bakvið Hjartastein með myndbandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessir tveir fara á kostum í Hjartasteini.
Þessir tveir fara á kostum í Hjartasteini.
Í tilefni þess að Hjartasteinn fékk16 tilnefningar til EDDU verðlaunanna hafa aðstandendur kvikmyndarinnar sett saman myndband með öllum tilnefningunum til að heiðra hvern og einn listamann sem er tilnefndur.

Hjartasteinn hefur heldur betur slegið í gegn og hefur hún nú þegar unnið 22 alþjóðleg verðlaun, 9 þeirra á þessu ári en myndin hefur unnið til verðlauna erlendis núna fjórar vikur í röð.

„Við erum auðvitað himinlifandi með þann heiður að hljóta flestar EDDU tilnefningarnar þetta árið og samgleðjumst innilega okkar samstarfsfólki sem lagði allt sitt hjarta í gerð myndarinnar,“ segir Anton Máni Svansson, framleiðandi Hjartasteins.

„Þau sem tilnefnd eru eiga það öll svo sannarlega skilið og langaði okkur því að heiðra þau aðeins með því að skella í svona samantektar myndband með ýmsum stuttum sýnishornum úr myndinni, mörg sem við höfum ekki birt áður.“

Hann segir að fjöldi annarra aðila séu á bakvið allar þessar tilnefningar sem fá bara ekki nöfn sín á blað en eiga engu að síðar líka stóran hlut í þessum viðurkenningum.

„Þau lögðu alveg jafn mikið hjarta í verkið. Viljum við því einnig óska þeim innilega til hamingju, þessi heiður er tileinkaður öllum sem að myndinni komu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×