Lífið

Heidi Klum sannaði að hún væri í brókum - Myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Fyrirsætan Heidi Klum mætti nýverið í spjallþátt Ellen og það fyrsta sem Ellen spurði hana að var: „Ertu búin að prófa að setjast í þessum kjól?“ Kjóll Klum var nokkuð stuttur og virtist Ellen hafa áhyggjur af því.

Heidi Klum benti þó á að hún hefði farið í sérstakar nærbuxur og sýndi gestunum. Brækurnar sem um ræðir voru í gjafapoka í búningsherbergi Klum.

Hún mun snúa aftur í dómarasæti í elleftu seríu Americas Got Talent á næstunni. Howard Stern er hættur, en í hans stað kemur Simon Cowell, sem var lengi dómari í þáttunum American Idol.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×