Glamour

Heiðar Logi í ítarlegu viðtali hjá Rolling Stone

Ritstjórn skrifar
Heiðar Logi kom vel fyrir í viðtali hjá Rolling Stone.
Heiðar Logi kom vel fyrir í viðtali hjá Rolling Stone. Mynd/Rolling Stone
Íslenski brimbrettakappinn Heiðar Logi er í ítarlegu viðtali í nýjasta tölublaði hjá Rolling Stone. Þar furðar blaðamaðurinn sig á því að Heiðar leggi í ískaldan íslenskan sjóinn til þess að berjast við öldurnar. 

Heiðar er fyrsti atvinnu brimbrettakappi Íslands. Hann ólst upp í Sandgerði þar sem honum var kennt að sjórinn væri hættulegur staður. Það tók hann því langan tíma að venjast öldunum við strendur Íslands. Brimbrettaíþróttinn var þó það sem bjargaði Heiðari frá athyglisbrestinum, alkahólismanum og fleiru. Helgarblað Fréttablaðsins tók einmitt viðtal við Heiðar árið 2015 sem má lesa hér. 

Í viðtalinu talar Heiðar einnig um heimildarmyndina The Accord sem segir frá honum og hvernig það er að vera á brimbretti við strendur Íslands. 

Hægt er að lesa þetta áhugaverða viðtal hér.


Tengdar fréttir






×