Golf

Heiða með tveggja högga forskot eftir fyrstu umferðina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Heiða Guðnadóttir.
Heiða Guðnadóttir. Mynd/Golfsamband Íslands
Heiða Guðnadóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar er efst að loknum fyrsta hringnum af alls þremur á Securitasmótinu á Eimskipsmótaröðinni í golfi. Heiða lék á 72 höggum eða +2 í morgun en tvær umferðir verða leiknar í dag á Vestmannaeyjavelli.

Heiða er með tveggja högga forskot. Þar á eftir koma þær Tinna Jóhannsdóttir úr GK og Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK á 74 höggum (+4). Síðari umferð dagsins fer fram eftir hádegi í dag en lokaumferðin fer fram á morgun, laugardag.

Blíðskaparveður er í Eyjum þessa stundina og útlitið en bjartara það sem eftir lifir dags.

Staðan í kvennaflokknum:

1. Heiða Guðnadóttir, GM 72 högg +2

2. – 3. Tinna Jóhannsdóttir, GK 74 högg +4

2. – 3. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 74 högg +4

4.–6.  Helga Kristín Einarsdóttir, NK 76 högg +6

4.–6.  Anna Sólveig Snorradóttir, GK 76 högg +6

4.–6.  Berglind Björnsdóttir, GR 76 högg +6




Fleiri fréttir

Sjá meira


×