Innlent

Hefur þú séð þennan bíl?

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Lögreglan leitar að stolnum jeppa.
Lögreglan leitar að stolnum jeppa. Lögreglan
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt mynd af bíl sem stolið var aðfaranótt 3. mars. Bíllinn er af gerðinni Nissan Patrol. Jeppinn er svartur á lit og árgerð 1995. 

Skráningarnúmer jeppans er PD-593 og samkvæmt lögreglu er hann nokkuð áberandi í umferðinni, enda á 38" dekkjum.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um hvar bifreiðin er niðurkomin eru beðnir að hafa samband við lögreglu.


 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×