Bíó og sjónvarp

Hefur forðast internetið frá árinu 2000

Samúel Karl Ólason skrifar
George Lucas, höfundur Star Wars.
George Lucas, höfundur Star Wars. Vísir/EPA
Leikstjórinn George Lucas, hefur forðast internetið í fimmtán ár eða frá árinu 2000. Hann hefur ekki verið á Facebook, Twitter eða jafnvel með tölvupóst. Lucas segir að að hluta til sé ástæða þess sú að hann vilji ekki lesa neikvæða hluti um sjálfa sig og kvikmyndir sínar.

Lucas varð fyrir mikilli gagnrýni eftir að Star Wars: The Phantom Menace kom út árið 1999. Sú gagnrýni varð háværari með útkomu næstu tveggja Star Wars mynda og virtist hún ná hámarki þegar Indiana Jones lifði af kjarnorkusprengingu með því að fela sig í ísskáp, eins og sjá má hér að neðan.

Í viðtali Lucas við Washington Post kom fram að höfundur Star Wars hefur enn ekki séð nýjustu myndina The Force Awakens, sem frumsýnd verður 18. desember. Hann seldi fyrirtæki sitt, Lucasfilm, til Disney fyrri þremur árum og fékk fyrir það fjóra milljarða dala. Með fyrirtækinu fylgdi rétturinn að framleiðslu Star Wars mynda og mynda um Indiana Jones.

Disney stefnir nú að því að framleiða fjölda Star Wars mynda og fyrirtækið er einnig að byggja tvo Star Wars skemmtigarða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×