Sport

Hefur aðeins horft á fyrsta tapið einu sinni á myndbandi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Nelson varð undir gegn Rick Story.
Gunnar Nelson varð undir gegn Rick Story. vísir/getty
Gunnar Nelson hefur tekið því rólega síðan hann tapaði fyrsta MMA-bardaganum á ferlinum gegn Rick Story í október.

Hann hefur eytt tímanum með fjölskyldunni og verið duglegur að æfa, en á dögunum var hann í Danmörku að kenna á MMA-námskeiði fyrir UFC-bardagasambandið.

„Ég tók mér kannski smá frí, en ég hef mætt í æfingasalinn nánast daglega.  Þetta hefur verið rólegur tími þar sem það er ekkert á dagskránni. Ég hef getað eytt tímanum með fjölskyldunni, æft á mínum hraða og unnið í nýjum hlutum,“ segir Gunnar í viðtali við tímaritið Fighters Only.

vísir/getty
Gunnar segist aðeins hafa horft á myndband af fyrsta tapinu einu sinni, en segist nógu snjall þegar kemur að blönduðum bardagalistum til að vita hann þurfi að læra sína lexíu.

„Ég lærði mikið af síðasta bardaga. Þetta var langur og erfiður bardagi og það er ýmislegt sem ég get tekið með mér úr honum. Það eru líka hlutir sem ég verð að skilja eftir,“ segir Gunnar, en hvað hefði hann átt að gera betur gegn Story?

„Ég festist í ákveðnum hreyfingum - ég hefði getað hreyft mig mun frjálslegar. Það er eitthvað sem ég hef vanalega gert mjög vel því ég er með gott jafnvægi. Mér fannst ég nokkuð stífur í þessum bardaga.“

Enginn bardagi er á dagskránni hjá Gunnari á næstunni, en hann mun hjálpa vini sínum og verðandi ofurstjörnunni Conor McGregor að æfa fyrir risabardaga hans gegn Dennis Siver í janúar.

„Ég held að Conor komi kannski til Íslands til að æfa. Ef ekki þá skrepp ég yfir tl Dyflinnar og hjálpa strákunum. Það er engin spurning. Þetta er mitt lið og þar eiga menn stóra bardaga í janúar. Ég mun klárlega hjálpa þeim,“ segir Gunnar.

Aðspurður hvenær hann sjálfur ætli að snúa aftur stefnir Gunnar á endurkomu í janúar og hann sé þá tilbúinn til að berjast við hvern sem er.

MMA

Tengdar fréttir

Gunnar tapaði á stigum

Gunnar Nelson tapaði sínum fyrsta bardaga í blönduðum bardagalistum á stigum gegn Rick Story.

Ótrúlegur ferill Gunnars Nelson

Augu Íslands verða á Stokkhólmi annað kvöld þar sem okkar maður stígur í búrið og mætir Bandaríkjamanninum Rick Story.

Gunnar á leið í sneiðmyndatöku

Haraldur Nelson faðir Gunnars Nelson var í viðtali á Bylgjunni strax eftir tap Gunnars gegn Rick Story í UFC í Stokkhólmi í kvöld.

Story: Vildi ekki hlaupa inn í eldinn með Gunnari

Það var mjög sérstakt að sjá Rick Story á blaðamannafundinum eftir bardagann við Gunnar Nelson. Þar fór ekki maður sem leit út fyrir að hafa lagt andstæðing sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×