Hefja rannsókn á afskiptum Rússa Kjartan Kjartansson skrifar 30. mars 2017 17:31 Mark Warner (t.v.) og Richard Burr (t.h.) við upphaf yfirheyrsla leyniþjónustunefndar öldungadeildarinnar. Vísir/EPA
Fulltrúi Demókrataflokksins sakaði Rússa um að reyna að „stela“ bandarísku kosningunum í fyrra þegar leyniþjónustunefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings hóf formlega rannsókn á afskiptum Rússa. Rannsókn nefndarinnar mun meðal annars beinast að því hvernig rússnesk stjórnvöld dreifðu fölskum upplýsingum á samfélagsmiðlum í aðdraganda kosninganna. Mark Warner, hæst setti demókratinn í nefndinni, sagði herferðina „rússneskan áróður á sterum“ að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Rússneskir útsendarar hafi birt vandræðalegar stolnar upplýsingar á vefsíðum eins og Wikileaks og tímasett birtingu þeirra til að valda Hillary Clinton, forsetaframbjóðanda demókrata, sem mestum skaða, að sögn Warner. Formaður leyniþjónustunefndarinnar, repúblikaninn Richard Burr, sagði Bandaríkjamenn alla hafa verið skotmörk háþróaðs og færs óvinar. Varaði hann við því að nefndarmenn létu pólitík vefjast fyrir sér því þá muni rannsóknin að líkindum fara út um þúfur. Rannsókn leyniþjónustunefndar fultrúadeildarinnar á meintum tengslum rússneskra embættismanna og samstarfsmanna Trump hefur einmitt ratað í öngstræti eftir að Devin Nunes, repúblikaninn sem fer fyrir henni, upplýsti forsetann um atriði sem hann fullyrti að hann hefði komist að, án þess að upplýsa aðra nefndarmenn. Jared Kushner, tengdarsonur Trump, á að koma fyrir leyniþjónustunefnd öldungadeildarinnar í næstu viku.
Mest lesið Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Innlent Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Innlent Fleiri löggur á leiðinni Innlent Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Erlent Fleiri fréttir Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Ríki heims verja metupphæðum til hermála Kynferðisafbrotamanni bannað að nota gervigreind Sjá meira