Innlent

Hefði verið eðlilegt að byrja á réttum enda

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Kjartan Magnússon sat einn hjá við atkvæðagreiðsluna um móttöku flóttamanna.
Kjartan Magnússon sat einn hjá við atkvæðagreiðsluna um móttöku flóttamanna. Vísir/ANton/Getty
Borgarfulltrúinn Kjartan Magnússon segir að eðlilegt hefði verið að raunverulegt svigrúm og geta Reykjavíkur til að taka við stórauknum fjölda flóttamanna í borginni hefði verið könnuð áður en ráðist væri í slíkt verkefni.

Eins og áður hefur verið greint frá samþykkti borgarstjórn í dag að hefja viðræður við ríkisvaldið um hlutverk og aðkomu borgarinnar að móttöku flóttafólks. Tillagan var þverpólitísk og samþykkt af öllum borgarfulltrúum, að frátöldum fyrrnefndum Kjartani Magnússyni sem sat hjá.

Í bókun Kjartans um málið segir að Íslendingar hafi haft farsæla reynslu af því að taka á móti flóttamönnum og rétt sé að halda því áfram,  „eftir því sem efni og aðstæður leyfa,“ segir borgarfulltrúinn.

„Hins vegar skal varað við því að borgarstjórn skuli að óathuguðu máli hvetja til fjöldaflutninga á flóttamönnum til Reykjavíkur umfram þann fjölda sem nú þegar hefur verið ákveðinn og án þess að ljóst sé með hvaða hætti það verður gert,“ bætir hann við í bókuninni.

Honum þætti eðlilegra að áður en slík hvatning væri samþykkt hefði verið eðlilegt að byrja verkefnið á réttum enda. „Til dæmis þarf að athuga hvernig skólar borgarinnar, velferðarþjónusta og sjúkrahús eru í stakk búin til að auka umsvif sín í samræmi við slíkan fjölda. Þekkt er að nú þegar eru langir biðlistar eftir margvíslegri opinberri þjónustu í Reykjavík. Einnig þarf að meta hvernig húnæðismarkaðurinn í borginni er í stakk búinn til að taka á móti slíkum fjölda,“ segir Kjartan. Þannig liggi ekkert fyrir um kostnað við slíkan fjöldaflutning né kostnaðskiptingu ríkis og borgar.

Kjartan lýkur bókun sinni með því að undirstrika að sá fjöldi sýrlenskra flóttamanna, sem komist hefur til Evrópu, er aðeins lítill hluti vandans. „Eða um 2 prósent af þeim 10 milljónum sem talið er að hafi flúið heimili sín vegna borgarastyrjaldarinnar í Sýrlandi,“ segir borgarfulltrúinn. „Bent hefur verið á að það sé mun líklegra til árangurs að Vesturlönd auki hjálparstarf sitt sem næst átakasvæðinu og leggi þannig áherslu á að hjálpa sem flestum, það er þeim milljónum sem búa við erfiðar aðstæður í flóttamannabúðum í Tyrklandi, Jórdaníu, Líbanon og Sýrlandi sjálfu,“ segir Kjartan Magnússon enn fremur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×