Sport

Hefði ekki getað fyrirgefið sjálfum sér ef dómarinn sem hann þrumaði í hefði slasast illa

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Denis Shapovalov negldi bolta í andlitið á Arnaud Gabas.
Denis Shapovalov negldi bolta í andlitið á Arnaud Gabas. vísir/afp
Kanadíski tenniskappinn Denis Shapovalov segir að hann hefði aldrei getað fyrirgefið sjálfum sér ef dómarinn sem hann þrumaði tennisbolta í andlitið á hefði slasast illa.

Hinn sautján ára Shapovalov var dæmdur úr leik fyrir að slá tennisbolta af miklum krafti í andlit dómara í viðureign Bretlands og Kanada í Davis-bikarnum á sunnudaginn. Þetta var óviljaverk hjá Kanadamanninum en hann var engu að síður dæmdur úr leik.

Dómarinn slasaðist ekki alvarlega og fékk einlæga afsökunarbeiðni frá Shapovalov eftir viðureignina. Svo fór að Bretar fögnuðu sigri í viðureigninni á móti Kanada vegna þessa, 3-2. Shapovalov skammaðist sín mjög.

„Ég veit hversu hættulegt þetta getur verið. Mín fyrstu viðbrögð voru að athuga hvort dómarinn væri í lagi,“ segir Shapovalov í viðtali við BBC.

„Ég leit á dómarann og sá að hann hélt um augað. Eftir það var ég í áfalli. Ég man eiginlega ekki hvað gerðist næstu tíu mínúturnar. Ég man bara eftir því að hafa farið að bekknum og spurt dómarann hvort það væri í lagi með hann.“

Shapovalov slapp við þyngstu refsingu sem er sekt upp á 12.000 dali en hann var sektaður um 7.000 dali þar sem augljóslega var um óviljaverk að ræða. Kanadamaðurinn segir að dómarinn hafi verið hressari skömmu eftir leikinn og sló á létta strengi þegar hann fór og bað hann afsökunar.

Dómarinn er franskur og heitir Arnaud Gabas. Farið var með hann á sjúkrahús til skoðunnar en sem betur fer kom í ljós að augað á honum var í lagi.

„Ég hef fengið bolta í mig á marga staði líkamans og veit hversu hættulegt þetta er. Ég er bara heppinn að það er allt í lagi með hann. Ef hann hefði slasast illa hefði ég aldrei getað fyrirgefið sjálfum mér. Ég hefði bara ekki komist yfir það,“ segir Denis Shapovalov.

Shapovalov athuga hvort í lagi sé með Gabas.vísir/afp

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×