Lífið

Hefðarkettir í Hönnunarhúsi

Brynhildur Björnsdóttir skrifar
Bragi sýnir hlutföllin í húsinu en þau eru einn á móti þremur.
Bragi sýnir hlutföllin í húsinu en þau eru einn á móti þremur. Inga Lind
Keeping up with the Kattarshians er raunveruleikaþáttur sem hægt er að fylgjast með á nutiminn.is þar sem fjórir kettlingar dvelja í nokkrar vikur í sérhönnuðu húsi.

Þátturinn hefur vakið mikla athygli og ekki hvað síst hönnun hússins sem var í höndum Braga Valgeirssonar.

Bragi er leikmyndahönnuður  og hefur unnið að raunveruleikaþáttum eins og Dans, dans, dans, Masterchef, Voice og ýmsum erlendum verkefnum að auki. Kettlingahús Kattarshians kattanna er hans nýjasta afrek.

Hér gægjast Stubbur og Guðni Kattardishian framundan skorsteininum á glæstu heimili sínu.Inga Lind
„Ég lagði tvær hugmyndir fyrir framleiðendurna og þau sögðu: Þetta er bara ekki nóg, við viljum meira! Svo ég vildi ekki láta hanka mig á því aftur og fór alla leið,“ segir Bragi sem hannaði hús á tveimur hæðum með húsgögnum, stigum milli hæða, eldhúsinnréttingu, baði og myndum á veggjum.

„Pælingin var að gera mannlegt umhverfi sem myndi passa við kisurnar."

Velferð kettlinganna er auðvitað í fyrirrúmi við hönnun hússins en sjónræn skemmtilegheit voru næst á dagskrá. 

„Veggfóður kemur til dæmis miklu betur út í mynd,“ segir Bragi en í húsinu eru þrjár mismunandi tegundir af veggfóðri og marmari á baðherberginu. 

Það var einnig meðvituð ákvörðun að hafa húsið á tveimur hæðum, kettlinganna vegna. „Kettir eru margra hæða dýr og leita upp. Kettlingar hafa hins vegar oft ekki hugmynd um hvernig þeir eiga að komast niður aftur og þess vegna fannst mér algjört skilyrði að hafa stiga.“

Krúttlegar kojur setja svip sinn á svefnálmuna enda sofa kettlingarnir vært þar.Inga Lind
Kettlingarnir eiga hvert sína kojuna og sofa oft þar saman í hrúgu. Sá Bragi fyrir sér að þeir myndu einhvern tíma sofa í sínum eigin rúmum? 

„Nei, ég sá það svo sem ekki fyrir mér. En þeir urðu samt að eiga rúm.“ 

Húsið er í stærðarhlutföllunum einn á móti þremur og og að sögn Braga var dálítið mál að finna húsgögn í þeim hlutföllum. „En þessar kojur settu algerlega punktinn yfir i-ið.“

Eftirlæti Braga í húsinu er baðkerið en í þessum töluðu orðum liggur Ronja einmitt þar eins og hún sé í baði og teygir fætur og tær makindalega út í loftið. „Að finna þetta baðker sem smellpassar var algjör snilld.“

Ronja nýtur þess að liggja í baðinu.Inga Lind
Kettlingarnir drasla mjög mikið út eins og ungviði er tamt, er einhver sem tekur til hjá þeim?

„Það kemur fólk til þeirra að minnsta kosti tvisvar á dag, tekur til og knúsar og kjassar sem er mjög mikilvægt til að þeir verði góðir heimiliskettir að verkefninu loknu.“

Einhverjir hafa kvartað yfir auglýsingahléum í útsendingunni en á meðan er einmitt verið að sinna þörfum kettlinganna og stefnan er sú að þegar öllum kettlingunum hafa verið tryggð örugg og góð heimili, flytja þeir úr húsinu og nýir íbúar koma inn. 

Á veggjunum er bara ein mynd sem er ekki af ketti og hún er af Guðna Th. Jóhannessyni forseta.

„Þetta var ekki mín hugmynd en mér fannst hún engu að síður frábær,“ segir Bragi. „Myndin staðsetur okkur hér á Íslandi og undirstrikar að Guðni er forseti allra.“

Verkefnið er unnið í samvinnu við Kattavinafélag Íslands, með fullri vitneskju og samþykki Matvælastofnunar, dýraeftirlitsmanns suðvesturumdæmis og dýralæknis gæludýra og dýravelferðar. 

Ronja og Stubbur í gamnislag í kojunni.Inga Lind





Fleiri fréttir

Sjá meira


×