Lífið

Heat biðst afsökunar á frétt um Timberlake og Biel

Bjarki Ármannsson skrifar
Vísir/Getty
Tímaritið Heat hefur beðist afsökunar á frétt um hjónaband stjörnuhjúanna Justin Timberlake og Jessica Biel eftir að parið fór í mál við miðilinn. Fréttin, sem gaf í skyn að tveggja ára hjónaband þeirra stæði á brauðfótum, hefur jafnframt verið dregin til baka.

BBC greinir frá. Þau Timberlake og Biel hafa einnig samið við tímaritið um bætur. Heat birti fréttina í síðasta mánuði en írskur dómstóll úrskurðaði að hún hefði verið byggð á „ótraustum heimildum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×