Handbolti

HBstatz: Rúnar bestur í sókn en Ólafur bestur í vörn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rúnar Kárason skorar í leiknum á móti Túnis.
Rúnar Kárason skorar í leiknum á móti Túnis. Vísir/EPA
Rúnar Kárason hefur staðið sig best af íslensku leikmönnunum í fyrstu þremur leikjunum á HM í handbolta samkvæmt tölfræðisamantekt HBstatz.

HBstatz fylgist vel með íslenska landsliðinu á HM í handbolta og tekur saman ítarlega tölfræði um frammistöðu leikmanna.

Leikmenn íslenska liðsins fá nákvæma einkunn fyrir frammistöðu sína út frá tölfræðinni, bæði í vörn og sókn.

Íslenska liðið hefur nú spilað þrjá leiki á mótinu og því athyglisvert að skoða það hverjir hafa verið að standa sig best í sókn sem vörn.

Rúnar Kárason er langhæstur þegar kemur að sóknarleiknum en hann er bæði markahæstur með 13 mörk (ásamt Guðjóni Val Sigurðssyni) og sá sem hefur gefið flestar stoðsendingar (7, einni fleiri en Ólafur Guðmundsson).

Guðjóni Valur er í öðru sætinu en þeir Ólafur Guðmundsson og Arnór Atlason eru síðan jafnir í 3. til 4. sæti.

Rúnar hefur nýtt helming skota sinna og það sem skiptir miklu máli er að hann hefur enn ekki tapað bolta á mótinu samkvæmt tölfræði HBstatz.

Ólafur Guðmundsson er líka í nokkrum sérflokki þegar kemur að bestu einkunninni fyrir varnarleikinn. Ólafur hefur náð sextán löglegum stöðvunum (aukakast án refsingar) og þá er hann bæði með 3 stolna bolta og 3 varin skot samkvæmt tölfræði HBstatz.

Guðmundur Hólmar Helgason er í öðru sæti en þriðji er síðan Bjarki Már Gunnarsson. Ólafur Guðmundsson og Rúnar Kárason eru þeir einu sem komast inn á topp fimm í bæði sókn og vörn.

Það er mjög gaman að skoða tölfræði HBstatz frá HM en hana má alla finna hér. Frábært framtak hjá HBstatz sem verður vonandi orðin aðaltölfræði íslenska handboltans hér heima áður en langt um líður.



Besti sóknarmaður Íslands í fyrstu þremur leikjum liðsins á HM 2017:

1. Rúnar Kárason 7,8

2. Guðjón Valur Sigurðsson 6,9

3. Ólafur Guðmundsson 6,7

4. Arnór Atlason 6,7

5. Janus Daði Smárason 6,6

6. Bjarki Már Elísson 6,4

7. Arnar Freyr Arnarsson 6,1

Á móti Spáni: Arnar Freyr Arnarsson 7,1

Á móti Slóveníu: Bjarki Már Elísson 9,1

Á móti Túnis: Janus Daði Smárason 8,9



Besti varnarmaður Íslands í fyrstu þremur leikjum liðsins á HM 2017:

1. Ólafur Guðmundsson 7,5

2. Guðmundur Hólmar Helgason 6,4

3. Bjarki Már Gunnarsson 6,1

4. Rúnar Kárason 6,0

5. Arnar Freyr Arnarsson 6,0

6. Janus Daði Smárason 5,9

7. Arnór Þór Gunnarsson 5,9

Á móti Spáni: Ólafur Guðmundsson 7,3

Á móti Slóveníu: Guðmundur Hólmar Helgason 7,3

Á móti Túnis: Ólafur Guðmundsson 8,2




Fleiri fréttir

Sjá meira


×