Viðskipti innlent

HB Grandi á Aðalmarkað 25. apríl

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda.
Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda. Vísir/GVA
Kauphöllin hefur samþykkt umsókn HB Granda um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði. Þann 9. apríl samþykkti Kauphöllin umsókn HB Granda að uppfylltum skilyrðum um dreifingu hlutafjár. Þeim skilyrðum hefur nú verið fullnægt.

Hlutabréf HB Granda eru nú skráð á First North Iceland markaðinn. Við töku til viðskipta á Aðalmarkaðnum verða hlutabréfin afskráð af First North Iceland.

Síðasti viðskiptadagur hlutabréfa HB Granda á First North Iceland er 23. apríl næstkomandi og verða bréfin tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar næsta viðskiptadag eða 25. apríl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×