Enski boltinn

Hazard segist ekki vera á leiðinni frá Chelsea

Stefán Árni Pálsson skrifar
Willian, Diego Costa og Edin Hazard fagna marki með Chelsea.
Willian, Diego Costa og Edin Hazard fagna marki með Chelsea. Vísir/Getty
Eden Hazard segist ekki vera á leiðinn frá Chelsea en hann náði sér ekki á strik með liðinu í vetur. Belginn var valinn besti leikmaður tímabilsins 2014-15 með liðinu en tímabilið á eftir gekk mjög illa hjá Hazard.

Mikið hefur verið ritað um Hazard og mögulegt brotthvarf hans frá Lundúnarliðinu.

„Ég er með samning við félagið til ársins 2020 og mig langar alls ekki að enda dvöl mína hjá Chelsea á þessum nótum,“ segir Hazard.

Leikmaðurinn gerði aðeins fjögur mörk fyrir félagið á síðasta tímabili og spilaði ekki vel.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×