Haustkræsingar Rósu: Rauðrófurisotto

Vísir Matur 18. október 2011 14:00
Rósa Guðbjarts.
Rósa Guðbjarts.
Matarinnslag úr Íslandi í dag þar sem Rósa Guðbjartsdóttir eldar ómótstæðilegar haustkræsingar á sinn einstaka hátt. Kíkið síðan á uppskriftirnar og spreytið ykkur sjálf.


Gulrótarbollur
2 dl hnetur, helst kasjúhnetur, saxaðar frekar smátt
3-4 gulrætur, rifnar fínt
2 hvítlaukrif, marin
1 laukur, saxaður smátt
1 dl vorlaukur eða graslaukur, saxaður smátt
1 sellerístilkur, saxaður smátt
1-2 tsk. kumminfræ eða steytt kummin
1 egg
1-2 dl brauðrasp (má nota hveiti, spelt eða annað mjöl í staðinn)
salt og grófmalaður pipar

Öllu hráefni blandað saman í stórri skál, þar til blandan er orðin hæfileg viðkomu til að gott sé að móta úr henni bollur. Gott er að nota matskeið til að móta bollurnar. Steikið í örlítilli olíu á pönnu, t.d. vínberjasteina- eða sólblómaolíu, (má líka nota ólífuolíu) á pönnu við miðlungshita, í um 3 mínútur á hvorri hlið.


Kryddjurtasósa
Í kryddjurtasósu sem þessa má nota hvaða kryddjurtir sem er en gott er að nota klettasalat sem uppistöðuhráefni, en það gefur mjög ákveðið bragð og má oft nota í svipuðum tilgangi og kryddjurtir.

2 handfylli klettasalat
1 handfylli fersk steinselja og/eða aðrar kryddjurtir
2 hvítlaukusrif, marin
nokkrir dropar ólífuolía
2 - 3 msk. grísk jógúrt eða sýrður rjómi

Blandið saman í matvinnsluvél öllu nema jógúrtinni eða sýrða rjómanum. Setjið síðan í skál og blandið jógúrt/sýrða rjómanum saman við. Þessi sósa er afar ljúffeng og hentar með ýmsum mat, og einnig sem ídýfa t.d. fyrir niðurskorið grænmeti.



Rauðrófurísottó
f. fjóra

2-3 rauðrófur, skrældar og skornar í fernt
1 lítri vatn
2 msk. smjör
1 msk. ólífuolía
1 laukur, smátt saxaður
1 rauðlaukur, smátt saxaður
2 hvítlauksrif, marin
4 dl rísottó-grjón (arborio) eða önnur stutt hrísgrjón
fetaostur, að smekk
fersk basilíka, að smekk
salt og grófmalaður pipar

Galdurinn við gott rísottó er að gefa sér tíma við matreiðsluna, bæta vökvanum saman við í hæfilegum skömmtum, láta grjónin drekka hann í sig og hræra í á milli. Þannig verður útkoman sem skyldi og grjónin mjúk og rjómakennd.

Byrjið á því að sjóða rauðbeðurnar í vatninu í um 30 mínútur. Takið síðan rauðbeðurnar upp úr pottinum og geymið í skál. Rauðbeðusoðið er síðan notað til að elda hrísgrjónin upp úr. Hitið ólífuolíu ásamt smjöri á stórri pönnu eða í potti. Mýkið lauk, rauðlauk og hvítlauk þar í. Bætið síðan hrísgrjónunum út á og veltið þeim vel upp úr olíunni og smjörinu. Bætið þá rauðrófusoðinu saman við í smáum skömmtum og hrærið vel í. Látið grjónin drekka í sig soðið á milli þess sem meiri vökva er bætt út í. Þetta tekur um 20 mínútur. Kryddið með salti og pipar. Rífið eða smásaxið rauðbeður saman við, bætið við osti og basilíku og berið fram. Auðvitað má bæta fleiru út í þennan rétt og leyfa hugmyndafluginu að njóta sín í þeim efnum.

Fleiri fréttir - Matur

Matur 18. maí. 2012 15:15

Helgarmaturinn - Nautalundir að hætti Nínu Bjarkar

Nína Björk Gunnarsdóttir ljósmyndari býr í Lúxemborg með fjölskyldu sinni. Hún nýtur þess ...  

Meira
Matur 11. maí. 2012 15:00

Helgarmaturinn - Sumarlegar bollakökur ritstjóra

Lilja Katrín Gunnarsdóttir, ritstjóri Séð og heyrt og leikkona, eyðir ófáum stundum í eldh...  

Meira
Matur 04. maí. 2012 17:00

Nammigræðgi starfsfélaganna spillir oft góðu plani

Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka leggur mikið upp úr góðri heil...  

Meira
Matur 04. maí. 2012 15:00

Helgarmaturinn - Sumarsalöt Brynju Nordqvist

Það er ekki hægt að neita því að mataræðið léttist oft á sumrin í takt við léttari lund og...  

Meira
Matur 27. apr. 2012 14:00

Helgarmaturinn - Prótínvefja að hætti Hönnu Kristínar

Hanna Kristín Didriksen setur heilsuna í forgang og vandar hvað hún setur ofan í kroppinn....  

Meira
Matur 20. apr. 2012 12:45

Helgarmaturinn - Völundur Snær með grilluppskrift

Völundur Snær sjónvarpskokkur deilir með Lífinu, aukablaði Fréttablaðsins í dag fyrstu gri...  

Meira
Matur 17. apr. 2012 09:32

Með matreiðsluþátt á BBC

"Það er frábært að BBC sé að sýna þættina og þátturinn hefur fengið mikla dreifingu fyrir ...  

Meira
Matur 13. apr. 2012 11:00

Helgarmatur Loga Geirssonar

"Uppáhaldið mitt er þessi uppskrift sem ég og konan eldum saman um helgar,“ segir Lo...  

Meira
Matur 05. apr. 2012 11:00

Lúxus hafragrautur - Bestur á morgnana eða milli mála

"Hafragrauturinn er mitt uppáhald og er fastur liður á nánast hverjum degi,“ segir E...  

Meira
Matur 02. apr. 2012 10:00

Borðað með puttunum á eþíópískum veitingastað

"Ég flutti til Íslands árið 2000 og mig langaði alltaf að opna eþíópískan veitingastað og ...  

Meira
Matur 23. mar. 2012 14:00

Ungfrú Ísland opnar matardagbókina

Skagamærin Sigrún Eva Ármannsdóttir, 19 ára, ungfrú Ísland 2011, gaf sér tíma til að skrif...  

Meira
Matur 23. mar. 2012 12:00

Helgarmaturinn - dásamlegur eftirréttur

Lára Berglind Helgadóttir og eiginmaður hennar, Andrés Guðmundsson, eigendur Skólahreysti ...  

Meira
Matur 16. mar. 2012 11:30

Helgarmaturinn - Grillaður humar

Þegar fyrrum þulan og íslenskufræðingurinn, Anna Rún Frímannsdóttir vill dekra við fjölsky...  

Meira
Matur 04. mar. 2012 10:00

Beint úr eldhúsinu

Þrír erlendir kokkar keppa í dag í Hörpu um titilinn kokkur ársins á hátíðinni Food and Fu...  

Meira
Matur 17. feb. 2012 15:30

Helgarmaturinn

Rakel Sif Sigurðardóttir, nær­ingar- og heilsuráðgjafi, heldur úti dásamlegri síðu á Face­...  

Meira
Matur 11. feb. 2012 10:00

Helgaruppskrift Helgu Möller

Helga Möller söngkona segist jafnvel elda helgarmatinn á mánudögum sökum óreglulegs vinnut...  

Meira
Matur 13. jan. 2012 19:27

Nýtt ár - breytt mataræði

Ef þú ert ein(n) af þeim sem ætlar að bæta mataræðið núna eftir hátíðirnar, þá gæti þessi ...  

Meira
Matur 21. des. 2011 16:08

Aðventukræsingar Rósu: Girnilegir eftirréttir um jólin

Rósa Guðbjarts eldar hér og gefur uppskriftir að súkkulaðifreistingu og bökuðum, fylltum e...  

Meira
Matur 15. des. 2011 12:47

Eldum saman hlýtur hin eftirsóttu Gourmand-verðlaun

Matreiðslubókin Eldum saman eftir Guðmund Finnbogason var á dögunum valin besta barna- og ...  

Meira
Matur 14. des. 2011 11:00

Hátíð að hætti Nönnu: Silungstoppar, pörusteik og panna-cotta

Nanna Rögnvaldardóttir matgæðingur eldar alltaf hangikjöt á jóladag. Á aðfangadag eru anda...  

Meira
Matur 13. des. 2011 20:00

Gæsalifur og Galette de roi

Björg Björnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Barnaheill – Save the Children á Íslandi, bj...  

Meira
Matur 13. des. 2011 09:44

Aðventukræsingar Rósu: Chillísúkkulaði og brauðkollur

Rósa Guðbjarts eldar hér og gefur uppskriftir að heitu chillísúkkulaði, brauðkollum með fy...  

Meira
Matur 11. des. 2011 10:00

Vogaskóla frómas

Uppskrift að ananasfrómas sem fjölskylda Birnu Jónsdóttur hjúkrunarfræðings gæðir sér á hv...  

Meira
Matur 10. des. 2011 11:00

Tvær gerðir af gómsætu smurbrauði

Smurbrauð með rækjum og smurbrauð með reyktum laxi, kavíar og avókadómauki...  

Meira
Matur 05. des. 2011 18:53

Hráfæðis-piparmyntusúkkulaði

Hér er gómsæt uppskrift Sólveigar Eiríksdóttur á hráfæðis-piparmyntusúkkulaði sem hún elda...  

Meira
Matur 25. nóv. 2011 11:15

Eldar og bakar á hverjum degi

„Ég veit fátt betra en að borða, það er mikið áhugamál hjá mér,“ segir Eva Lau...  

Meira
Matur 12. nóv. 2011 20:00

Harry‘s vekur athygli

Filippseyski veitingastaðurinn Harry‘s er umfjöllunarefni blaðamanns The Philippine ...  

Meira
Matur 11. nóv. 2011 13:00

Matardekur Hrefnu

Það er ekki í kot vísað að leggja sér góðgæti Hrefnu Rósu Sætran til munns, en hún kætir m...  

Meira
Matur 08. nóv. 2011 16:51

Smoothie að hætti Ebbu

Ebba Guðný Guðmundsdóttir er nýkomin heim frá Frankfurt þar sem hún náði að selja bókina s...  

Meira
Matur 18. okt. 2011 14:00

Haustkræsingar Rósu: Rauðrófurisotto

Matarinnslag úr Íslandi í dag þar sem Rósa Guðbjartsdóttir eldar ómótstæðilegar haustkræsi...  

Meira
Matur 07. okt. 2011 20:00

Haustkræsingar Rósu: Brokkolísúpa með osti

Matarinnslag úr Íslandi í dag þar sem Rósa Guðbjartsdóttir eldar ómótstæðilegar haustkræsi...  

Meira
Matur 23. sep. 2011 11:00

Heimilismatur í sparibúningi

Nýir eigendur tóku við Café Aroma í Hafnarfirði fyrir ári og hefur staðurinn fest sig vel ...  

Meira
Matur 02. sep. 2011 11:00

Líka fyrir augað

Tuna Dís Metya er af úkraínskum og tyrkneskum ættum, fædd og uppalin í Bordeaux í Frakklan...  

Meira
Matur 24. ágú. 2011 10:00

Eldað í Vesturheimi

Rómantík ræður ríkjum hjá ungum, íslenskum hjónum í litlu koti í New York, en þar stendur ...  

Meira
Matur 23. ágú. 2011 21:00

Lífrænn markaður á Lækjartorgi

Frá miðjum júlí hefur Ari Hultquist boðið vegfarendum að kaupa glænýtt lífrænt ræktað græn...  

Meira
Matur 23. ágú. 2011 14:30

Þurrkuðu eplin mikið sælgæti

Þorsteinn Sigmundsson, bóndi í Elliðahvammi, ræktar epli og býr til eplasafa og eplasælgæt...  

Meira
Matur 05. júl. 2011 12:30

Himneskar karamellukökur Rikku

Friðrika Hjördís Geirsdóttir er landsmönnum að góðu kunn, ekki síst fyrir skrif og þætti u...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Matur / Haustkræsingar Rósu: Rauðrófurisotto