Golf

Haukur Örn fyrsti Íslendingurinn í stjórn EGA

Anton Ingi Leifsson skrifar
Haukur Örn er kominn í stjórn EGA.
Haukur Örn er kominn í stjórn EGA. vísir/gsi.is
Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Ísland, var kosinn í dag í EGA sem er stjórn evrópska golfsambandsins, en ársþingið fer fram í St. Andrews í Skotlandi.

Hann er fyrsti Íslendingurinn til að taka sæti í stjórninni, en hann var tilnefndur sem fulltrúi Norðurlandanna og austur-Evrópu í kjörinu.

„Ég er afar stoltur af því hafa verið valinn til forystu hjá Evrópska golfsambandinu og lít á það sem mikla viðurkenningu á því góða starfi sem unnist hefur í golfhreyfingunni á Íslandi undanfarin ár," sagði Haukur og bætti við:

„Eftir því er tekið á alþjóðlegum vettvangi og ég hlakka til að fá tækifæri til þess að miðla þekkingu milli íslenskra og annarra evrópskra golfklúbba."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×