Innlent

Haukur Logi dregur framboð sitt til baka

Atli Ísleifsson skrifar
Haukur Logi Karlsson.
Haukur Logi Karlsson.
Haukur Logi Karlsson hefur ákveðið að draga framboð sitt til forystu á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík til baka.

Segist hann ekki geta gefið sér nægan tíma í kosningabaráttuna, fari svo að hann nái efsta sæti, og hafi hann því ákveðið að draga sig í hlé.

Í tilkynningu frá Hauki Loga segir að fyrir tólf dögum hafi hann stigið inn í pólitíkina vongóður um að hann gæti látið gott af sér leiða. „Nú tólf dögum síðar hafa aðstæður hjá mér breyst sem leiðir til þess að ég mun ekki geta gefið mér þann tíma í kosningabaráttu sem nauðsynlegur væri, færi svo að ég hefði sigur í kjöri um efsta sætið á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík norður. Af þeim sökum sé ég ekki ástæðu til þess að halda framboði mínu áfram og hef því tilkynnt formanni kjörstjórnar um að ég dragi framboð mitt til baka.

Meðframbjóðendum mínum óska ég velfarnaðar í framhaldinu og hvet ég Framsóknarmenn í Reykjavík til að fylkja sér á bak við Lilju Dögg Alfreðsdóttur og þann frambjóðanda sem sigrar í kosningunni um hitt oddvitasætið svo ná megi árangri í kosningunum í lok október. Stuðningsmönnum þakka ég góða hvattingu og stuðning á meðan framboðinu stóð,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×