Körfubolti

Haukur í sigurliði en Martin í tapliði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Okkar menn í franska boltanum, Haukur Helgi og Martin Hermannsson.
Okkar menn í franska boltanum, Haukur Helgi og Martin Hermannsson.
Martin Hermannsson átti mjög góðan leik, venju samkvæmt, fyrir lið sitt, Charleville, í frönsku B-deildinni í kvöld.

Hann skoraði 23 stig og tók 5 fráköst í 63-88 tapi gegn Le Havre. Þetta var slæmt tap því Le Havre komst upp fyrir Charleville með sigrinum. Le Havre í fimmta sæti og Charleville þar á eftir.

Haukur Helgi Pálsson og félagar í Rouen unnu lífsnauðsynlegan sigur, 74-63, á Aix-Maurienne.

Haukur Helgi skilaði 6 stigum, 5 fráköstum og 3 stoðsendingum í leiknum.

Haukur Helgi og félagar hafa verið í mikilli botnbaráttu í vetur en eru nú í þrettánda sæti af átján liðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×