Körfubolti

Haukur Helgi: Við ætlum okkur á EM

Óskar Ófeigur Jónsson í London skrifar
Haukur Helgi á hliðarlínunni á æfingu íslenska landsliðsins í gær.
Haukur Helgi á hliðarlínunni á æfingu íslenska landsliðsins í gær. Vísir/ÓÓJ
Haukur Helgi Pálsson meiddist á hné í síðasta leik en ætlar ekki að láta þau meiðsli stoppa sig frá því að spila leikinn mikilvæga á móti Bretum í London í kvöld.

„Þetta er ekki neitt og ég verð með á morgun (í dag). Þetta er mikilvægur leikur og svona tækifæri koma ekki oft. Ég verð bara að harka þetta af mér," sagði Haukur Helgi Pálsson kokhraustur eftir æfingu landsliðsins í gær en hann var þá með klakaumbúðir vafðar um hnéð.

Haukur átti frábæran leik í fyrri leiknum á móti Bretum en spilaði aðeins í 14 mínútur í Bosníu vegna villuvandræða og meiðsla.

„Ég lenti í villuvandræðum í Bosníu sem ég má alls ekki gera. Það voru samt margir sem voru að stíga fram í leiknum sem var flott," sagði Haukur Helgi sem meiddist í seinni hálfleiknum.

„Ég lendi í þessu hnjaski þegar ég fékk einn fljúgandi á mig. Þeir stóðu sig frábærlega strákarnir og þetta gekk svo sem allt í lagi þótt að þetta hafi ekki gengið hjá mér. Liðið stóð sig frábærlega," sagði Haukur.

Ísland tryggir sér annað sætið í riðlinum með sigri á Bretum í kvöld.

„Við verðum að vinna þennan leik og þetta er hrikalega einfalt. Við förum þangað til að vinna en ekki til að tapa ekki með plús tíu. Við förum og vinnum leikinn því við ætlum okkur á þetta mót," sagði Haukur.

Íslenska liðið kom til baka á móti Bosníu og sýndi líka mikinn karakter í sigrinum á Bretum í Laugardalshöllinni.

„Íslenska eðlið er að gefast aldrei upp og alltaf að trúa því að við getum unnið öll þessi lið. Við höfum sýnt það síðustu sumur að við getum staðið í mörgum af þessum sterkustu liðum og stolið nokkrum sigrum. Við ætlum að vinna þetta lið," sagði Haukur.

Hávaðinn og lætin voru mikil í Bosníu og strákarnir í liðinu láta því ekkert slá sig út af laginu þótt Bretar fái góðan stuðning í kvöld.

„Það var frábært að vera þarna og flestir geta tekið eitthvað úr þessu að sjá sjö þúsund Bosníumenn öskra allan tímann. Þótt að maður skyldi ekki neitt þá vissi maður bara að þetta var geðveiki," sagði Haukur um stemninguna í höllinni í Tuzla.

En kemst Ísland á EM? „Við þurfum að vera þokkalega óheppnir ef við vinnum þennan leik en komust ekki á EM. Við ætlum að fara og vinna. Við förum á EM," sagði Haukur að lokum.


Tengdar fréttir

Logi: Við erum allir eins og bræður

Logi Gunnarsson, leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins, er harður á því að leikurinn á móti Bretum í kvöld sé sá stærsti á ferlinum ásamt því að hrósa liðsheildinni í íslenska landsliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×